Perla Hilmars dugði til jafnteflis við Val | Sjáðu mörkin Sindri Sverrisson skrifar 4. mars 2020 20:53 Hilmar Árni Halldórsson skoraði tvö mörk í kvöld. vísir/bára
Hilmar Árni Halldórsson tryggði Stjörnunni 2-2 jafntefli við Val í Lengjubikarnum í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðabæ í kvöld. Mörkin úr leiknum fylgja fréttinni. Klippa: Mörkin úr leik Stjörnunnar og Vals Valur var 2-0 eftir fyrri hálfleik eftir glæsilegt mark Einars Karls Ingvarssonar og ágætt mark Sigurðar Egils Lárussonar. Munurinn var enn tvö mörk þar til að um korter lifði leiks en þá fékk Stjarnan vítaspyrnu eftir að brotið var á Jóhanni Laxdal á vítateigslínunni. Hilmar Árni skoraði af miklu öryggi úr vítinu framhjá Hannesi Þór Halldórssyni sem átti góðan leik í marki Vals. Eftir að Valsmenn höfðu verið betri í fyrri hálfleik voru heimamenn sterkari í seinni hálfleik og þeir náðu að jafna metin þegar Hilmar Árni skoraði með glæsilegu skoti á 81. mínútu. Valur er nú með sjö stig á toppi 4. riðils A-deildar, stigi á undan Fjölni og ÍBV, og þremur stigum á undan Stjörnunni. Valur hefur leikið fjóra leiki en hin þrjú liðin þrjá. Vestri er í 5. sæti með þrjú stig eftir tvo leiki og Víkingur Ó. með 0 stig í neðsta sæti.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Körfubolti María að gera Þóri að afa Fótbolti „Allir eru hér að skemmta sér í sátt og samlyndi“ Sport „Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“ Sport Sérlega gleðileg jól í ár og langt hlé á enda Sport Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjör: Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 1-0. Margrét með sigurmarkið í upphafi leiks Botnlið Fram vann óvæntan sigur á toppliði Blika Eyjakonur með fyrsta sigurinn í tvo mánuði Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Elías Már sárþjáður og fór af velli Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig Uppgjörið: ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Uppgjörið: ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: FH - Stjarnan 2-2 | Jafnt í Krikanum Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2 | Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjörið: Þór - KR 3-3 | Endurkoma hjá KR Sjá meira