Innlent

Ekkert nýtt innan­lands­smit

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Kórónuveiran á bráðamótökunni í Fossvogi
Kórónuveiran á bráðamótökunni í Fossvogi Vísir/Vilhelm

Tveir greindust með kórónuveiruna síðasta sólarhringinn við landamæraskimun samkvæmt nýjustu tölum á Covid.is. Enginn greindist á veirufræðideild Landspítalans. Fjórir greindust með veiruna sólarhringinn þar áður. Fjórir þeirra sem greinst hafa á landamærunum eru smitandi en fimmtán eru það ekki, þ.e. með gömul smit en mælast enn með mótefni gegn veirunni. Einn bíður eftir niðurstöðum.

Virk smit á landinu eru ellefu eins og í gær. Þannig virðast tveir hafa náð bata milli daga. Þá voru 969 sýni tekin við landamæraskimun síðasta sólarhringinn, 101 hjá Íslenskri erfðagreiningu og 70 hjá veirufræðideild Landspítala.

344 eru nú í sóttkví og fækkaði þeim um rúmlega þrjátíu milli daga. Staðfest smit frá upphafi faraldurs eru orðin 1838. 1816 hafa náð bata. Alls hafa tuttugu og átta greinst með veiruna frá því að skimanir hófust við landamærin 15. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×