Innlent

Ekki lengur varað við ferðum til opinna Evrópu­ríkja

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ríkisstjórnin gaf út ferðaráðleggingar til Íslendinga vegna kórónuveirunnar þann 14. mars síðastliðinn. Lítil umferð hefur verið um Keflavíkurflugvöll vegna faraldursins síðustu mánuði.
Ríkisstjórnin gaf út ferðaráðleggingar til Íslendinga vegna kórónuveirunnar þann 14. mars síðastliðinn. Lítil umferð hefur verið um Keflavíkurflugvöll vegna faraldursins síðustu mánuði. Vísir/Vilhelm

Íslendingum er ekki lengur ráðið frá ónauðsynlegum ferðum til þeirra ríkja Evrópu sem þeir mega ferðast til án sérstakra skilyrða. Áfram er Íslendingum þó ráðið frá ónauðsynlegum ferðum utan Evrópu vegna ferðatakmarkana og sóttvarnaákvæða sem þar kunna að vera í gildi. Þetta kemur fram í uppfærðum ferðaráðum til Íslendinga sem gefin voru út í dag.

Ríkisstjórnin gaf út ferðaráðleggingar til Íslendinga vegna kórónuveirunnar þann 14. mars síðastliðinn. Þar var Íslendingum ráðið frá ónauðsynlegum ferðalögum til útlanda og þeir sem voru á ferðalagi erlendis voru hvattir til að íhuga að snúa heim. Í kjölfarið aðstoðaði borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins þúsundir Íslendinga á leið þeirra heim til Íslands.

Nú þegar faraldurinn er í rénun í Evrópu og landamæri flestra ríkja Evrópska efnahagssvæðisins hafa opnast Íslendingum hafa þessar ráðleggingar verið endurskoðaðar, með áðurgreindri niðurstöðu.

Þá er vakin athygli á því að skilgreining sóttvarnarlæknis á áhættusvæðum vegna smithættu er áfram í gildi, þ.e. öll lönd utan Færeyja og Grænlands eru enn skilgreind sem áhættusvæði.

Öllum þeim sem hafa dvalið á áhættusvæðum er skylt að sæta sóttvarnaraðgerðum á landamærum, þ.e. undirgangast skimun við komuna til landsins eða sæta tveggja vikna sóttkví.

Í tilkynningu eru Íslendingar beðnir að hafa í huga að aðstæður geta breyst hratt. Flest samstarfsríki Íslands hafi varað við því að ekki verði um heimflutninga að ræða líkt og þegar heimsfaraldurinn skall á snemma árs 2020. Ekki sé gert ráð fyrir að utanríkisþjónustan geti aðstoðað Íslendinga með sama hætti og þá ef aðstæður breytast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×