Kona á þrítugsaldri lést eftir að hafa orðið fyrir árás hunda í norðanverðu Frakklandi. Grunur leikur á að hundarnir hafi verið á vegum veiðimanna sem staðfest þykir að hafi verið á veiðum í nágrenninu, skammt frá bænum Villers-Cotterêts.
Konan, sem var með barni, hafði verið á göngu með hundana sína fimm þegar árásin varð. Saksóknari málsins sagði í samtali við þarlenda fjölmiðla að konan hafi skömmu fyrir andlátið hringt í eiginmann sinn og lýst yfir áhyggjum sínum af hópi hunda sem hún óttaðist að myndu ráðast á sig. Það var eiginmaður hennar sem gekk fram á lík konunnar að sögn saksóknara, eftir að hafa heyrt angistarvein í hundum þeirra hjóna.
Banamein konunnar er talið hafa verið fjöldi hundsbita í höfuð, búk og handleggi. Lögreglan segir málið rannsakað sem manndráp. Tekin hafa verið lífsýni úr 93 hundum við rannsóknina, þar á meðal fimm hundum hjónanna.
Að sögn staðarblaðsins Le Courrier Picard voru fyrrnefndir veiðihundar, sem grunur leikur á að hafi ráðist á konuna, á dádýraveiðum með hópi veiðimanna. Samtök þarlendra veiðimanna þvertaka hins vegar fyrir aðkomu þeirra, ekkert bendi til þess að veiðihundar hafi átt þátt í andláti konunnar.
Franska leikkonan og dýravinurinn Brigitte Bardot er þó á öðru máli. Hún hefur hvatt frönsk stjórnvöld til að banna frekari veiðar í landinu, alla vega út þetta veiðitímabil.
Erlent