Þyrla sótti rjúpnaskyttu sem varð fyrir slysaskoti í Eldhrauni Kjartan Kjartansson skrifar 1. nóvember 2019 20:23 Sjúkrabíll frá Klaustri ók til móts við TF-LÍF sem tók við manninum við Vík í Mýrdal. Lögreglan á Suðurlandi
Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar til að sækja rjúpnaskyttu á sjötugsaldri sem varð fyrir slysaskoti í fótinn í Eldhrauni í dag. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var maðurinn með fulla meðvitund en hlaut ljótan áverka á öðrum fætinum. Tilkynning barst lögreglunni á Suðurlandi um slysaskotið laust eftir klukkan 15:00 í dag, að sögn Sigurðar Sigurbjörnssonar, varðstjóra hjá lögreglunni á Suðurlandi. Skot hafði þá hlaupið úr byssu mannsins og hæft hann í fótinn. Veiðifélagar mannsins hringdu eftir aðstoð og veittu honum fyrstu hjálp. Hann var í fyrstu fluttur á heilsugæsluna á Kirkjubæjarklaustri. Þar mat læknir áverka mannsins það alvarlega að ákveðið var að kalla til þyrlu Gæslunnar. Sigurður segir að ekið hafi verið með manninn á móti TF-LÍF sem tók við honum á flugvellinum við Vík í Mýrdal um klukkan 16:00 síðdegis. Ekki var hægt að veita frekari upplýsingar um líðan mannsins.
Landhelgisgæslan Lögreglumál Mýrdalshreppur Mest lesið Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Alvöru inniveður um helgina Innlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Listamönnum fækkar ört Innlent Hvalfjarðargöng lokuð Innlent Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Innlent Enn frekari dráttur á máli Margrétar Innlent Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Innlent Truflanir víða vegna eldingaveðurs Innlent Fleiri fréttir Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Kynna tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan 11:30 „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Bein útsending: Staða mæðra á vinnumarkaði Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Sjá meira