Lífið

Há­teigs­skóli og Ár­bæjar­skóli komust á­fram í Skrekk

Atli Ísleifsson skrifar
Úr atriði Árbæjarskóla.
Úr atriði Árbæjarskóla. Skrekkur
Háteigsskóli og Árbæjarskóli komust áfram í úrslit í hæfileikahátíðinni Skrekk, en fyrsta undanúrslitakvöld keppninnar fór fram í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi.

Alls tóku átta skólar þátt í gærkvöldi, þeir Árbæjarskóli, Háteigsskóli, Hólabrekkuskóli, Langholtsskóli, Laugalækjarskóli, Norðlingaskóli, Rimaskóli og Ölduselsskóli.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að samtals taki 24 grunnskólar taka þátt í keppninni í ár en átta þeirra munu keppa til úrslita þann 11. nóvember.

„Yfir 600 unglingar taka þátt í á frumsömdum atriðum sinna skóla og spreyta sig í leiklist, söng, dansi, hljóðfæraleik, búningahönnun, förðun ljósum, hljóði og annarri sviðsvinnu.

Dómnefnd í undanúrslitum skipa þau Greta Salóme, Donna Cruz, Ernesto Camilo, Viktor Örn Hjálmarsson og Sigfríður Björnsdóttir, formaður dómnefndar,“ segir í tilkynninunni.

Annað og þriðja undanúrslitakvöld keppninnar fara fram í kvöld og á morgun.

Úr atriði Háteigsskóla.Reykjavíkurborg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.