Í færslunni segir Pálmi: „Ég finn mig knúinn til að benda á eitt þar sem eitthvað af ungum tónlistarmönnum eru að followa mig. Nýlega var haft samband við mig frá RÚV og ég beðinn um að vera einn af „völdum“ lagahöfundum fyrir Söngvakeppnina 2020. Ég var alvarlega að íhuga það þangað til að ég las yfir samninginn sem RÚV lætur lagahöfunda skrifa undir við skil. Ég nenni ekki að fara út í detaila hér en í stuttu máli eruð þið að skrifa frá ykkur helminginn af útgáfurétti lagsins til íslenska ríkisins til eilífðar nóns. Ég er ekki að reyna að segja neinum hvað eða hvað hann á ekki að gera en bara benda á að ég myndi ALDREI taka þátt á þeim forsendum sem eru lagðir til í þessum samningi. Og hvet fólk sem er að taka þátt eða búið að skila inn demo-um að kynna sér málið mjög vel. Þetta er ekki í lagi. Og RÚV er EKKI útgefandi þó það borgi eitthvað smotterí fyrir að taka þátt. Og síðast en ekki síst, RÚV er opinber stofnun. Hlutverk RÚV er að styrkja stoðir íslenskra menningar en ekki græða á ungum og illa upplýstum listamönnum.“

Gengið sendi inn lagið Lítil skref með Maríu Ólafsdóttur í Söngvakeppnina árið 2015 og fór lagið alla leið í lokakeppnina. Þeir tóku því þátt í Eurovision í Vínarborg sama ár og þá sem lagahöfundar. Ásgeir Orri var einnig í bakröddum í keppninni.
RÚV ber umtalsverðan kostnað
Vísir leitaði svara hjá RÚV varðandi málið og vill RÚV og Rúnar Freyr Gíslason, fjölmiðlafulltrúi og verkefnastjóri Söngvakeppninnar koma eftirfarandi á framfæri:„RÚV hefur verið útgefandi laga í Söngvakeppninni frá því að keppnin hófst hérlendis fyrir 35 árum síðan. RÚV hefur séð um samninga við innlenda og erlenda útgefendur vegna útgáfunnar og hefur ríkar skyldur gagnvart EBU varðandi form útgáfunnar. RÚV ber umtalsverðan kostnað af útgáfunni, þvert á það sem umræddur lagahöfundur heldur fram. RÚV greiðir lagahöfundum fyrir upptöku á lögunum í keppninni. Að auki greiðir RÚV sigurvegaranum vinningsupphæð sem er óbreytt frá því í fyrra,“ segir Rúnar í skriflegu svari til Vísis. Hann segir að kostnaðurinn fari eftir umfangi en sé á milli 900 þúsund og upp í 1,5 milljónir á hvert lag.

Á síðustu árum hafa erlendar stórstjörnur úr Eurovision heiminum troðið upp í Höllinni á úrslitakvöldinu, Eleni Foureira, Alexander Rybak, Loreen, Robin Bengtsson, Måns Zelmerlöw og fleiri. Á því verður engin breyting í næstu keppni.
Sigurvegari Söngvakeppninnar 2020 mun síðast taka þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd í Rotterdam í Hollandi.