Lífið

Hafnfirðingur númer 30.000 leystur út með gjöfum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Hafnfirðingur nr. 30.000 með fjölskyldu sinni og Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra.
Hafnfirðingur nr. 30.000 með fjölskyldu sinni og Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra. Aðsend mynd
Hafnfirðingar eru nú orðnir 30.000 talsins. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, fagnaði áfanganum með því að heimsækja nýfædda stúlku sem er Hafnfirðingur númer 30.000. Stúlkan, sem ekki hefur fengið nafn, fæddist 15. október síðastliðinn og er því tveggja vikna gömul.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ voru stúlkunni og fjölskyldu hennar færð vönduð hafnfirsk list og gjafir „sem endurspegla áherslur sveitarfélagsins m.a. í umhverfismálum, læsi, heilsueflingu og hamingju.“

Foreldrar stúlkunnar eru þau Helga Rún Halldórsdóttir og Sigurður Fannar Grétarsson en þau áttu fyrir fimm ára dreng. Hjónin festu kaup á íbúð í suðurbæ Hafnarfjarðar fyrir ári síðan og er Helga Rún fædd og uppalin í bæjarfélaginu.

Stúlka Sigurðardóttir og Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.Aðsend mynd
„Stúlka litla Sigurðardóttir fékk skjal og listaverk frá bænum sínum til vitnis um að hún sé íbúi númer 30.000. Stóri bróðir fékk fallega bók að gjöf auk þess sem í glaðningum leyndust umhverfisvænar vörur fyrir litlu systur; þvottaklútur, handklæði og fyrsti tannburstinn. Saman fékk fjölskylda bókina Ró eftir þær Evu Rún Þorgeirsdóttur og Bergrúnu Írisi sem inniheldur einfaldar æfingar fyrir krakka og fullorðna til að framkalla slökun og innri ró. Fjölskyldan tók vel á móti bæjarstjóra og fylgdarliði,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Skessan veldur usla í Hafnarfirði

Sagan um Skessuna í Hafnarfirði, nýtt knattspyrnuhús FH-inga, er eins og besti reyfari - þar sem hundruð milljóna skipta um hendur og meirihlutinn fagnar en minnihlutinn grætur.

Hafnarfjarðarbær borgar malbikið og viðgerðir

Stjórn Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðarbæjar, AÍH, hefur óskað eftir aðkomu bæjarins til að greiða útistandandi skuld við Hlaðbæ Colas vegna malbiksviðgerða á akstursbraut félagsins við Krýsuvíkurveg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.