Alelda togari farinn á hliðina í Tromsø Atli Ísleifsson skrifar 26. september 2019 08:45 Eldurinn kom upp í gærmorgun. AP
Rússneskur togari sem lá við landfestar í Breivika-höfninni í Tromsø í Norður-Noregi fór á hliðina í morgun. Gríðarlegur eldur hafði þá logað í togaranum Bukhta Naezdnik síðan klukkan 11 að staðartíma í gærmorgun. Búið var að rýma stórt svæði með um 300 metra radíus, vegna sprengihættu. Á fréttamannafundi lögreglu í gærkvöldi kom fram að einnig hafi komið til greina að sökkva bátnum til að kæla hann, en að ákveðið hafi verið að grípa frekar til þeirra aðgerða að rýma svæðið. Um borð í skipinu er að finna stór ammoníaktankur sem skapaði mikla sprengjuhættu og gerir raunar enn. Talið er að um 200 þúsund lítrar af dísilolíu séu um borð í skipinu og er unnið að því að koma í veg fyrir að olían leki út.Svona var staðan á togaranum í gær.APTókst að bjarga öllum í áhöfn Viðbúnaðarstigi var komið á á sjúkrahúsi í Tromsø, en lokanir hafa skapað vandræði fyrir starfsfólk til að mæta til vinnu. Íbúar í grennd við höfnina voru hvattir til að loka gluggum vegna reyksins sem lagði frá togaranum. Eftir að eldurinn kom upp tókst að bjarga öllum 29 í áhöfn skipsins, en tólf voru færðir á sjúkrahús vegna gruns um að þeir hafi orðið fyrir reykeitrun. Ekki liggur fyrir um upptök eldsins. Bukhta Naezdnik var smíðað í Noregi árið 1991, er 64 metrar að lengd og þrettán metra breitt.
Noregur Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira