Bíó og sjónvarp

Ummæli sem rötuðu ekki í viðtal ýta undir kenningar um að nýi Batman muni kljást við nýja Jókerinn

Birgir Olgeirsson skrifar
Robert Pattinson mun leika Batmna í næstu mynd en Joaquin Phoenix leikur Jókerinn í mynd sem er væntanleg í október.
Robert Pattinson mun leika Batmna í næstu mynd en Joaquin Phoenix leikur Jókerinn í mynd sem er væntanleg í október. Vísir/Getty
Leikarinn Robert Pattinson hefur eins og frægt er orðið verið ráðinn til að leika ungan Batman í næstu mynd. Leikarinn mun taka við Ben Affleck í hlutverki Bruce Wayne sem ber glæpamenn Gotham í skjóli nætur klæddur sem leðurblökumaður. 

Væntanleg er mynd um erkióvin Batman, Jókerinn, sem Joaquin Phoenix leikur en þeirrar myndar er beðið með mikilli eftirvæntingu. Hafa gagnrýnendur farið fögrum orðum um þessa Jóker-mynd og Phoenix orðaður við Óskarsverðlaun fyrir frammistöðu sína.

Í þessari Jóker mynd er Batman þó hvergi sjáanlegur. Myndin einblínir á baksögu Jókersins, hvað það var sem gerði hann svo brenglaðan.

Pattinson mætti nýverið í viðtali við Variety þar sem hann tjáði sig um þessa væntanlegu Batman-mynd sína en þar sagðist hann hafa reiðst mikið þegar fregnir láku út þess efnis að hann væri orðaður við hlutverkið. Hélt Pattinson að það myndi gera út um möguleika sína um að hreppa þetta eftirsótta hlutverk.

En það voru þó ekki þau ummæli sem vöktu hvað mesta athygli, heldur ummæli sem eru í raun ekki í viðtalinu sjálfu. Sá sem tók viðtalið tók fram í textanum að á einum stað í samtali hans við PAttinson hafi leikarinn tjáð sig  lítillega um Joker-myndina hans Joaquin Phoenix áður en hann bað blaðamanninn um að fá að draga þau ummæli til baka.

Sagði Pattinson við blaðamanninn að hann væri ekki vanur því að þurfa að halda trúnaði varðandi verkefnin sín.

Því er hreinlega ekki vitað hvað Pattinson sagði nákvæmlega eða hvort það hafi yfir höfuð verið eitthvað merkilegt. Það hefur þó ekki stoppað aðdáendur Batman-mynda í að mynda sér skoðun á því hvað það mögulega hafi verið. Telja margir þetta þýða að líkur séu á að áhorfendur fái að sjá Robert Pattinson og Joaquin Phoenix saman í mynd um Batman og Jókerinn.

Variety tók fram að ummæli Pattinson hafi varðað Joaquin Phoenix en ekki Jóker-myndina sjálfa sem hefur leitt til þess að margir halda í dag að Warner Bros.-myndverið sé með eitthvað meira í bígerð í nánustu framtíð. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.