Í upphafi júlímánaðar árið 2016 tóku fréttir að spyrjast út af því að Gretchen Carlson, ein af helstu fréttakonum Fox News, hefði höfðað mál gegn yfirmanni sínum, framkvæmdastjóra og einum af stofnendum Fox News, Roger Ailes og færi nú fram með alvarlegar ásakanir um kynferðislega áreitni á hendur honum. Hún hafði um nokkurt skeið fangað áreitnina á hljóðupptöku án vitundar Ailes.
Í kjölfarið kepptust þjóðþekktir starfsmenn Fox News við stíga fram með yfirlýsingar til stuðnings Ailes. Það var þó ekki fyrr systurfyrirtæki samsteypunnar, 21st Century Fox fór að grennslast fyrir um málið en rannsóknin leiddi í ljós að fjöldi kvenna hjá fyrirtækinu hafði nákvæmlega sömu sögu að segja og Carlson.

Ailes sagði síðan af sér 21. júlí og var gert að greiða Carlson tuttugu milljónir Bandaríkjadala í bætur. Hann lést í maí 2017, 77 ára að aldri.
Ailes var afar áhrifamikill í bandarískum fjölmiðlaheimi. Hann gegndi meðal annars hlutverki fjölmiðlaráðgjafa fjölda forseta Bandaríkjanna, meðal annars Richard Nixon, Ronald Reagan og George H.W. Bush. Þá var hann Donald Trump, núverandi forseta, innan handar í kosningabaráttunni.
Stórskotalið leikkvenna í Bombshell
Í kvikmyndinni eru sannarlega engir nýgræðingar á ferð því stórskotalið leikkvenna í Hollywood fer með helstu hlutverkin. Þannig mun Charlize Theron leika Megyn Kelly, Nicole Kidman leika Gretchen Carlson en Margot Robbie fer með hlutverk framleiðanda hjá fréttastöðinni.„Ég veiti þér stöðuhækkun ef þú sefur hjá mér“
Í sjónvarpsviðtali hjá Business Insider fór Megyn Kelly ofan í saumana á áreitninni. Hún sagði að hún væri ekki ein þeirra sem tækju gróft kynferðislegt tal nærri sér, það er að segja ef um augljóst grín væri að ræða. Hún segir þó kynferðislegar umleitanir yfirmannsins hafa verið allt annars eðlis. Ailes hafi verið fúlasta alvara.„Í fyrstu var ég fljót að afskrifa þessar kynferðislegu athugasemdir,“ útskýrði Kelly.
Það var ekki fyrr en áreitnin stigmagnaðist sem hún fór raunverulega að óttast um starfið sitt og öryggi.
„Þetta bara versnaði og versnaði og versnaði. Þetta var kynferðisleg áreitni. Þetta var svona: „Ég veiti þér stöðuhækkun ef þú sefur hjá mér.“ Jafnvel þá reyndi ég að gera lítið úr þessu og hló. Ég þóttist ekki heyra það sem ég heyrði. Ég þóttist misskilja hann því allra síst vildi ég þurfa að horfast í augu við hann og ávarpa vandann.
Ég vildi ekki þurfa að hafna honum og ég held að það sé mjög lýsandi fyrir konur í sömu aðstæðum. Þær hugsa, guð minn góður, starfið mitt er í húfi og það síðasta sem ég vil er að koma yfirmanninum mínum í uppnám og hafna honum. Maður vill ganga í augun á yfirmanninum sínum og fá hann til að hafa jákvætt viðmót gagnvart sér,“ sagði Kelly.
Kelly segir að þetta hefði gerst þrisvar en að hún hefði jafnóðum ýtt honum frá sér. Þá segir hún að Ailes hefði spurt hana hvenær samningurinn hennar hjá Fox News rynni út.