Breski Game of Thrones leikarinn Kit Harington, sem lék hlutverk Jon Snow í HBO þáttunum Game of Thrones sem sýndir voru á Stöð 2, segir að atriði þar sem persónu Harington flýgur um á dreka hafi farið verulega í taugarnar á honum.
Leikarinn, sem er 32 ára gamall, hefur áður greint frá því að vinna við drekaatriðin hafi reynst heldur óþægileg fyrir miðsvæðið.
„Emilia Clarke hefur verið að væla yfir þessu í nokkrar þáttaraðir, ég gaf lítið fyrir það. Ég sagði henni að hún hefði ekki þurft að vaða drulluna á tökustað í Norður-Írlandi. Sitjandi inni í upphituðu stúdíói, ekkert mál,“ sagði Harington við Hollywood Reporter.
Reyndin var þó önnur, Harington viðurkennir að senur hans í stúdíóinu hafi verið ömurlegar. „Hún hafði algjörlega rétt fyrir sér, þetta var skelfilegt. Þetta er ekki leiklist með nokkru móti svo var þetta mjög óþægilegt fyrir karlmann,“ sagði Harington sem mun væntanlega ekki þurfa að endurtaka leikinn nokkurn tímann enda er þáttaröðin liðin undir lok.
Kit Harington hataði drekasenurnar: „Þetta er ekki leiklist“

Tengdar fréttir

Viðbrögð Harington þegar hann frétti fyrst hvað Jon Snow myndi gera í lokaþættinum
Game of Thrones eru án efa vinsælustu þættir heims í dag og hafa verið það undanfarin ár. Lokaþátturinn í áttundu þáttaröðinni fór í loftið á Stöð 2 og um heim allan á dögunum og var það lokaþátturinn sjálfur.

Emila Clarke birtir skondna mynd af sér og Kit Harington á Laugaveginum
Leikkonan Emila Clarke birtir skemmtilega mynd af sér og Kit Harington að spauga á Laugaveginum þegar þau voru hér á landi við tökur á Game of Thrones á sínum tíma.

Game of Thrones: Heitt í kolunum í Westeros
Hér er fjallað um fimmta þátt áttundu þáttaraðar Game of Thrones.