Bíó og sjónvarp

Viddarnir í frumsýningarstuði

Fólk í Fréttablaðinu skrifar
Tom Hanks, Viddi og Bósi Ljósár
Tom Hanks, Viddi og Bósi Ljósár
Sérstaka athygli vakti hve vel fór á með þeim félögum, honum og Vidda sjálfum, en þetta verður síðasta myndin í Toy Story-sögunni. Búist er við að Toy Story 4 hali inn 200 milljónir dollara um helgina þegar myndin verður frumsýnd.

Að sjálfsögðu var Tim Allen einnig á svæðinu en hann leikur Bósa ljósár og hefur gert síðan 1995. Þá birtust þau Keanu Reeves, Christina Hendricks, Jordan Peele, Annie Potts, Timothy Dalton og Joan Cusack svo nokkrir séu nefndir úr leikaraliðinu.

Toy Story-sagan hefur verið gríðarlega vinsæl. Flestir héldu að þriðja myndin yrði sú síðasta enda hafði verið sagt að Pixar og Disney væru ekki með þá fjórðu á teikniborðinu. En mikið vatn rann svo til sjávar og myndin hefur þegar fengið góða dóma og er nánast lofað að hörðustu aðdáendur felli tár í lokin.

Leikararnir sem tala fyrir karakterana í Toy Story 4 komu saman á rauða dreglinum í vikunni þegar myndin var frumsýnd í Kaliforníu. Tom Hanks, sem hefur talað fyrir Vidda síðan fyrsta myndin var gerð 1995, var í frekar látlausum klæðnaði;






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.