Skoðun

Snemmtæk íhlutun

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Samhliða hækkandi meðalaldri og stórbættum greiningaraðferðum hefur tilfellum Alz­heimer-sjúkdóms fjölgað gríðarlega á undanförnum árum, og það í nær öllum heimsins hornum. Sjúkdómurinn, sem tekur til 60 til 70 prósenta allra tilfella heilabilunar, er að mati Alþjóða heilbrigðismálastofnunar eitt brýnasta úrlausnarefni mannkyns um þessar mundir og næstu áratuga.

Á heimsvísu er talið að um 40 til 50 milljónir manna glími við sjúkdóminn. Hér á landi, líkt og víðar, eru heilabilunarsjúkdómar eins og Alzheimer afar algengir. Sá einstaki árangur sem við höfum náð í læknavísindum á undanförnum áratugum hefur skilað sér í auknum lífslíkum og þar með auknum fjölda einstaklinga sem glíma við heilabilun og Alzheimer. Þannig höfum við, á sama tíma og við höfum fjármagnað, eflt og mannað merkar framfarir í heilbrigðisvísindum, vanrækt þarfir og réttmæta kröfu þeirra sem glíma við heilabilun og aðstandendur þeirra um viðeigandi þjónustu og skjóta greiningu.

Fyrr á þessu ári fjallaði Fréttablaðið ítarlega um erfiða stöðu málaflokksins hér á landi, stöðu sem krefst aðgerða. „Hér á landi er staðreyndin oft á tíðum sú að það er verið að bregðast við krísum og mikið hugsað í skammtímalausnum, en ekki litið á heildarmyndina,“ sagði Steinunn Þórðardóttir, sérfræðingur í lyf- og öldrunarlækningum, í samtali við Fréttablaðið. „Mér finnst við vera á þeim stað að ástandið er orðið óþolandi og það fyrir löngu síðan. […] Tengjum við ekki öll við þennan hóp? Ættingja okkar? Okkur sjálf eftir örfá ár? Við þurfum að undirbúa okkur fyrir framtíðina. Tíminn til aðgerða er núna.“

Alzheimer er sannarlega krefjandi verkefni, og því vekur vissa furðu hversu lítið hefur verið gert til að kortleggja umfang vandans hér á landi. Ekki er vitað með vissu hversu margir Íslendingar þjást af sjúkdómnum, en líklegt er að fjöldinn sé á bilinu fjögur til fimm þúsund.

Sem stendur er sjúkdómurinn ekki skráningarskyldur í lögum um landlækni og lýðheilsu en breyting þess efnis myndi vafalaust auðvelda alla áætlanagerð, sem sárlegur skortur er á, og það að meta þróun heilsufars þeirra sem glíma við Alzheimer-sjúkdóm. Frumvarp sem tekur á þessu var lagt fyrir Alþingi í mars síðastliðnum en hefur ekki enn verið tekið til umræðu. Þingið hefur haft öðrum hnöppum að hneppa, en frumvarpið verður að sögn flutningsmanna þess lagt fyrir á ný á næsta þingi.

Þörf er á mikilli vitundarvakningu um heilabilun og Alzheimer-sjúkdóm. Heildstæð stefna í málum þessara einstaklinga, sem boðuð var með þingsályktunartillögu árið 2017, ásamt skráningarskyldu Alzheimer, eru nauðsynleg fyrstu skref í þá átt. Snemmtæk íhlutun, í heilbrigðiskerfi sem búið er viðeigandi húsnæði, þekkingu og mannskap, getur skipt sköpum fyrir þessa einstaklinga og aðstandendur þeirra.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×