Erlent

Tveir fórust í bruna í Noregi

Atli Ísleifsson skrifar
Tilkynning barst slökkviliði skömmu fyrir lukkan eitt í nótt að staðartíma.
Tilkynning barst slökkviliði skömmu fyrir lukkan eitt í nótt að staðartíma. Getty
Tveir eru látnir eftir að mikill eldur kom upp í þremur húsum í Lierstranda í Buskerud, austur af Drammen, í nótt.

Espen Reite, talsmaður lögreglu, segir að slökkvilið hafi fundið líkin við leit í einu húsinu. Talið er að eldur hafi komið upp í einu húsanna og hann svo dreift sér til tveggja nálægra húsa.

Norskir fjölmiðlar greina frá því að hinir látnu hafi verið íbúar í húsinu. Þá voru karl og  kona á þrítugsaldri flutt á sjúkrahús eftir að hafa stokkið út um glugga í sama húsi.

Tilkynning um brunann barst slökkviliði skömmu fyrir klukkan eitt að staðartíma í nótt. Ekki liggur fyrir um upptök eldsins að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×