Búist við 500-600 bátum á strandveiðum í sumar Kristján Már Unnarsson skrifar 2. maí 2019 12:00 Frá Arnarstapa á Snæfellsnesi. Þar var floti strandveiðibáta farinn að safnast upp þegar þessi mynd var tekin á mánudag. Átta strandveiðibátar réru þaðan í morgun og fimm aðrir biðu í höfninni. Vísir/KMU.
Fyrsti dagur strandveiðanna er í dag að þær færa jafnan mikið líf í hafnir landsins hringinn í kringum landið þegar milli fimm- og sexhundruð smábátar bætast við flóru fiskveiðanna. Breytt lög tryggja hverjum báti núna að lágmarki tólf veiðidaga í hverjum mánuði fram til ágústloka. Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar. Á þessum fyrsta veiðidegi eru 257 smábátar komnir með strandveiðileyfi, um tíu prósent færri en á sama tíma í fyrra, en þá voru þeir 284 talsins. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir reynsluna þó sýna að þeim muni fjölga hratt á næstu vikum en í fyrra voru alls 548 bátar sem fengu leyfi til strandveiða. Örn á allt eins von á því að þeir verði fleiri í ár enda sé fiskverð núna hærra og veiðigjöldin lægri. Þá hefur orðið grundvallarbreyting á fyrirkomulagi strandveiðanna, sem fest var í sessi með lagabreytingum Alþingis, sem tóku gildi í síðasta mánuði. Áður voru þetta einskonar kappveiðar þar sem strandveiðisjómenn ruku af stað í upphafi hvers mánaðar, oft í misjöfnum veðrum, til að ná sem mestum afla áður en pottur hvers veiðisvæðis kláraðist.Patreksfjörður var aflahæsta strandveiðihöfnin í fyrrasumar.Vísir/EgillNúna er hverjum báti tryggðir tólf veiðidagar í hverjum mánuði og geta strandveiðisjómenn valir sjálfir hvenær innan mánaðarins þeir halda til veiða, frá mánudegi til fimmtudags. Hverjum báti er heimilt að koma með allt að 775 kíló að þorski að landi á dag. Þá hefur heildarveiðikvóti strandveiðanna verið aukinn úr 10.200 tonnum í fyrra upp í 11.000 tonn ár. Strandveiðarnar hleypa jafnan miklu lífi í sjávarbyggðir hringinn í kringum landið á sumrin en þær eru bundnar við mánuðina maí, júní, júlí og ágúst. Í fyrra var Patreksfjörður í efsta sæti og Bolungarvík í öðru sæti yfir þær hafnir þar sem mestum strandveiðiafla var landað. Hér má heyra frétt Bylgjunnar:
Bolungarvík Sjávarútvegur Snæfellsbær Vesturbyggð Tengdar fréttir Danskennarinn stígur ölduna á strandveiðum Fyrsti stóri strandveiðidagurinn rann upp í dag. 4. maí 2017 20:51 Töluverðar breytingar gerðar á strandveiðum á komandi vertíð Svigrúm smábátasjómanna til að ná í aflann verður aukið og pottar fyrir einstök svæði lagðir af. Þess í stað verður einn heildarpottur fyrir öll svæðin. 24. apríl 2018 19:15 Hann landaði 32 kílóa skrímsli á Bakkafirði Bakkafjörður er orðinn einn vinsælasti útgerðarstaður strandveiðisjómanna. Þar landa þeir stórþorski sem þeir veiða við Langanes og fagna mun hærra fiskverði en í fyrra. 4. júlí 2018 21:45 Afli í strandveiðum stóraukinn en fáir fást til að stunda veiðar Skýrsla sjávarútvegsmiðstöðvar HA sýnir að strandveiðar eru ekki á góðum stað. Aukinn afli fer inn í kerfið en afkoma sjómanna versnar og þeim fækkar. Mikilvægt að bæta kerfið að einhverju leyti. Sjávarútvegsráðherra segir skýrsluna mikilvægt innlegg. 15. mars 2018 06:00 Margir bundnir við bryggju á fyrsta degi strandveiða Fyrsti dagur strandveiðanna fór fyrir lítið hjá stórum hluta smábátaflotans því bræla hamlaði veiðum sunnan- og vestanlands. 2. maí 2017 21:00 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Sjá meira
Danskennarinn stígur ölduna á strandveiðum Fyrsti stóri strandveiðidagurinn rann upp í dag. 4. maí 2017 20:51
Töluverðar breytingar gerðar á strandveiðum á komandi vertíð Svigrúm smábátasjómanna til að ná í aflann verður aukið og pottar fyrir einstök svæði lagðir af. Þess í stað verður einn heildarpottur fyrir öll svæðin. 24. apríl 2018 19:15
Hann landaði 32 kílóa skrímsli á Bakkafirði Bakkafjörður er orðinn einn vinsælasti útgerðarstaður strandveiðisjómanna. Þar landa þeir stórþorski sem þeir veiða við Langanes og fagna mun hærra fiskverði en í fyrra. 4. júlí 2018 21:45
Afli í strandveiðum stóraukinn en fáir fást til að stunda veiðar Skýrsla sjávarútvegsmiðstöðvar HA sýnir að strandveiðar eru ekki á góðum stað. Aukinn afli fer inn í kerfið en afkoma sjómanna versnar og þeim fækkar. Mikilvægt að bæta kerfið að einhverju leyti. Sjávarútvegsráðherra segir skýrsluna mikilvægt innlegg. 15. mars 2018 06:00
Margir bundnir við bryggju á fyrsta degi strandveiða Fyrsti dagur strandveiðanna fór fyrir lítið hjá stórum hluta smábátaflotans því bræla hamlaði veiðum sunnan- og vestanlands. 2. maí 2017 21:00