Skoðun

Rugl og pólitík

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Daginn eftir Brexit-kosningarnar sneri blaðamaðurinn Carole Cadwalladr aftur á heimaslóðir, í smábæ í Suður-Wales, til að skrifa fréttaskýringu. Cadwalladr er þekktust fyrir að afhjúpa kaup málaliða hjá Cambridge Analyt­ica á gögnum um 87 milljónir Facebook-notenda, sem notuð voru í sálfræðihernaði gegn kjósendum í Bandaríkjunum og Bretlandi. Í heimabænum kusu 62 prósent bæjarbúa með Brexit.

Eins og í mörgum smábæjum þurftu íbúar að þola mikinn andbyr þegar kolanámum var lokað og stáliðnaður leið undir lok seint á síðustu öld.

Bæjarbragurinn við heimkomuna kom Cadwalladr á óvart. Glænýr háskóli var risinn, vegleg íþróttamiðstöð hafði litið dagsins ljós – 350 milljóna punda uppbygging meira og minna kostuð af sjóðum ESB blasti við hvert sem litið var. Þar fyrir utan voru 77 milljóna punda samgönguumbætur fyrirhugaðar. Nóga vinnu var að fá í blómlegum bæ.

Í fyrirlestri á dögunum greindi Cadwalladr frá samtali við ungan mann í nýreistu íþróttahúsinu. Hann sagðist hafa kosið með útgöngu og spurði hana: Hvað hefur ESB gert fyrir okkur? Þar sem hann stóð í íþróttahúsinu sem byggt var fyrir styrki frá ESB. Um allan bæ var sömu sögu að segja. En fólk var þreytt á ESB, og aðallega á innflytjendum og flóttafólki.

Þetta kom henni spánskt fyrir sjónir, þar sem hvergi var útlending að sjá. Að vísu varð pólsk kona á vegi hennar, sem sagðist vera meðal örfárra útlendinga í bænum.

Eftir að fréttaskýringin birtist hafði kona úr bænum samband við hana og tjáði sig um áhrif Facebook á hana í aðdraganda Brexit. Hæst bar hræðsluáróður um innflytjendur og væntanlega inngöngu Tyrklands í ESB.

Brexit-kosningaumræðan fór fram í myrkri meira og minna, því að Facebook réð ferðinni. Það sem gerist á Facebook, er bara á Facebook, því að þú ert sá eini sem sérð eigin fréttaveitu. Engin leið er að vita hver sá hvað, hvaða áhrif það hefur eða hvaða staðleysum er haldið að fólki því Mark Zuckerberg vill ekki deila því með okkur. Enginn veit hver borgar fyrir auglýsingarnar, eða hversu mikið.

Við nánari skoðun var innflytjendavandinn í bænum tilbúningur og Tyrkland ekki einu sinni í viðræðum um að ganga í ESB. Þetta er vandinn í hnotskurn.

Í könnun Fréttablaðsins í gær kom í ljós að tæpur helmingur vill ekki að Alþingi samþykki þriðja orkupakkann. Innan við þriðjungur er því fylgjandi. Tæp 59 prósent segjast ekki hafa kynnt sér málið eða kynnt sér það illa. Athygli vekur að stuðningur við pakkann eykst eftir því sem fólk hefur kynnt sér málið betur.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, fór mikinn í Silfrinu síðasta sunnudag. Hún virðist halda að með innleiðingu orkupakkans getum við öll, ég og þú, virkjað ár og lagt sæstreng án opinberra afskipta. Þetta er ekki rétt. Lágmarkskrafa er að stjórnmálamenn kynni sér mál sem fjallað er um. Pólitíkusar mega heldur ekki verða meðvirkir bullinu.

Svona málflutning þarf að leiðrétta. Hátt og snjallt. Hann er ógn við sjálft lýðræðið.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×