Ráðist á tólf ára stúlku Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 9. maí 2019 17:20 Stúlkan gaf lögreglu greinargóða lýsingu á árásinni sem reyndist vera með öllu tilefnislaus. Vísir/vilhelm
Laust eftir klukkan þrjú í dag tilkynnti faðir tólf ára stúlku að maður hefði ráðist á dóttur hans þegar hún var á leiðinni heim úr skólanum með þeim afleiðingum að hún hlaut áverka á andliti. Stúlkan gaf lögreglu greinargóða lýsingu á árásinni sem reyndist vera með öllu tilefnislaus. Gerandinn var einn á ferð þegar hann réðst á stúlkuna. Málið er í rannsókn. Þetta kom fram í dagbók Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Laust eftir klukkan 11 fyrir hádegi í dag fékk lögregla tilkynningu um slagsmál á milli tveggja ungra kvenna í Háaleitis-og Bústaðarhverfinu. Átökin voru yfirstaðin þegar lögregla kom á vettvang en ásakanir gengu á víxl. Konurnar hlutu minniháttar áverka vegna slagsmálanna. Að sögn lögreglu verður kæra hugsanlega lögð fram. Laust eftir klukkan eitt í dag var óskað eftir aðstoð lögreglu í opinberri stofnun í Hlíðunum vegna manns sem var ósáttur við afgreiðslu á máli. Sá sem kallaði eftir aðstoð lögreglu sagði að maðurinn hefði verið ógnandi í garð starfsfólks. Lögreglan vísaði manninum út. Í hádeginu var tilkynnt um innbrot og þjófnað úr geymslu í fjölbýlishúsi í Vesturbæ. Alls konar munum var stolið þaðan og er málið í rannsókn. Klukkan hálf tólf var lögreglu tilkynnt um mann sem áreitti fólk fyrir utan matvöruverslun í Breiðholtinu. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira