Skoðun

Falleg saga

Jóna Hrönn Bolladóttir skrifar
Í marsmánuði fórum við sjálfboðaliðar í verkefninu Örninn upp í Vatnaskóg með ungmenni sem misst hafa náinn ástvin. Viku áður höfðum við skrifað forseta Íslands og beðið hann að ávarpa hópinn í upphafi ferðar og hann svarað á þá leið að hann yrði á ferðinni á föstudagskvöldinu og myndi renna við í Skóginum. Þetta kvöld var aftakaveður en það breytti ekki því að á tilsettum tíma lagði forsetabíllinn fyrir utan Gamla skála og út úr hríðarbylnum kom herra Guðni Th. Jóhannesson í opinbera heimsókn. Hann tjáði unga fólkinu að hann hefði hvorki látið veður né nokkuð annað stöðva sig í því að hitta þau þetta kvöld.

Það var ógleymanleg stund við arineld þegar forsetinn ræddi við ungmennin. Tár féllu en hjörtun fylltust kjarki og von. Þegar forsetinn gekk út til að halda heim hafði ég dregið orð úr Biblíuöskju og við sendum hann út með hlýjar kveðjur og veganesti úr Markúsarguðspjalli sem hljóðaði svona: Jesús sagði: „Ef þú getur! Sá getur allt sem trúir.“ Tveimur vikum síðar stóð ég með fermingarhóp við kirkjudyr og var að fara yfir ritningarorðin sem þau höfðu valið sér til að flytja við fermingarathöfnina. Í hópnum var bróðursonur forsetans, Dagur Orri, og þegar ég innti hann eftir sínu versi þá horfði hann beint í augun á mér og mælti: Jesús sagði: „Ef þú getur! Sá getur allt sem trúir.“

Við myndatöku í lok athafnar sagði ég kirkjugestum af þessari skemmtilegu tilviljun með ritningarorðin þeirra frænda. Kom þá í ljós að eldri bróðir fermingar­drengsins, JóiPé sem var við athöfnina, hafði einmitt valið þetta sama ritningarvers fimm árum áður, en sá yngri verið allsendis óvitandi um það. Sumt í lífinu er of fallegt til að deila því ekki.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×