Innlent

Kisi grunaður

Baldur Guðmundsson skrifar
Stungið var á dekk og lakk skemmt samkvæmt færslum íbúa á Facebook.
Stungið var á dekk og lakk skemmt samkvæmt færslum íbúa á Facebook. vísir/vilhelm
Skemmdir voru unnar á um fimm bílum á Völlunum í Hafnarfirði aðfaranótt mánudags. Þetta staðfestir Sævar Guðmundsson aðalvarðstjóri. Stungið var á dekk og lakk skemmt samkvæmt færslum íbúa á Facebook.

„Það hefur einhver köttur verið þarna á ferðinni,“ segir Sævar. Ekki sé óvenjulegt að fá þrjár til fjórar tilkynningar um skemmdarverk að morgni dags. „Við skulum ekki gera úlfalda úr mýflugu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×