Miðflokksmenn óánægðir með birtingu álits siðanefndar sem sett var á vef Alþingis fyrir mistök Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 26. mars 2019 23:06 Þingmenn Miðflokksins, þau Gunnar Bragi Sveinsson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bergþór Ólason, náðust öll á Klaustursupptökunum. Mynd/Samsett
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmenn Miðflokksins, eru ósátt við að álit siðanefndar á því hvort umræður þeirra og athæfi á barnum Klaustri á síðasta ári falli undir siðareglur Alþingis hafi verið birt á vef Alþingis. Álitið var birt fyrir mistök að sögn skrifstofustjóra Alþingis.Í álitinu, sem birt var á vef Alþingis klukkan sjö í kvöld, kemur fram að það sé mat meirihluta siðanefndar að samræður þingmannanna fjögurra, Karl Gauta Hjaltasonar og Ólafs Ísleifssonar á barnum Klaustri sem teknar voru upp og birtar í fjölmiðlum hafi ekki verið einkasamtal þeirra á milli. Ummælin og hegðun sem heyra megi á upptökum falli undir gildissvið siðareglna þingsins. Í yfirlýsingu á Facebook-síðu Miðflokksins gera fjórmenningarnar hins vegar athugasemdir við að álitið hafi verið birt. Farið hafi verið fram á birtingu þess yrði frestað þar sem andmælafrestur væri ekki liðinn. Auk þess hyggðust þau leggja fram „nýjar og veigamiklar upplýsingar sem sýndu að mat siðanefndarinarinnar væri byggt á röngum forsendum.“Þar kemur einnig fram að fallist hafi verið á kröfu þingmannanna um að fresta birtingu álitsins, sem engu að síður var birt á vef Alþingis, en yfirlýsingu Miðflokksins má lesa hér fyrir neðan.Mistök sem gerð voru í tímaþröng Í samtali við Vísi staðfestir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis að samþykkt hafi verið að fresta birtingu álitsins sem stóð til að birta klukkan sjö í kvöld. Mistök hafi orðið til þess að álitið var birt á vef Alþingis um skamma hríð sem rekja megi til þess hversu stuttu fyrir áætlaða birtingu álitsins beiðni Miðflokksmanna um frestun barst starfsmönnum Alþingis.„Þau eru gerð í fullkomnu grandaleysi. Það er verið að útbúa eða undirbúa birtinguna því að við vitum ekkert annað en að hún standi fyrir dyrum en sex mínútum áður er sendur póstur. Þremur mínútum fyrir sjö geri ég ráðstafanir sem ég get gert á þeim tíma en það dugði ekki til og þetta var inn á vefnum í tvær til þrjár mínútur,“ segir Helgi.Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis.Fréttablaðið/Sigtryggur AriHann segist hafa haft samband við Steinunni Þóru Árnadóttur og Harald Benediktsson, sérstaka varaforseta Alþingis vegna málsins, sem hafi samþykkt að veita Miðflokksmönnum frest til klukkan fjögur á morgun til þess að leggja fram nýjar upplýsingar í málinu. Þá stendur til þess að birta álitið að nýju á vef Alþingis.„Ég hef strax samband við varaforsetana sem eru með þetta mál sem að sjálfsögðu féllust á þetta og sögðu það að þeir gæfu þá knappan frest til að fá einhver frekari rök í málinu. Það var alveg sjálfsagt mál að fresta birtingunni en svo svo slysalega vildi til að það var verið að hlaða henni inni og hún hékk á vefnum í 2-3 mínútur og var þá tekin út aftur,“ segir Helgi.Í yfirlýsingu Miðflokksins er vísað í frétt RÚV um álitið sem birtist á vef RÚV klukkan 19.20 og er því haldið fram að fréttastofa Ríkisútvarpsins hafi fengið upplýsingar um innihald bréfsins. Ljóst er hins vegar að jafn vel þótt starfsmenn Alþingis hafi kippt álitinu af vef Alþingis örfáum mínútum eftir birtingu var hægt að nálgast álitið á vefnum í minnst hálftíma áður en það datt út af vefnum.Helgi blæs algjörlega á þá staðhæfingu að Ríkisútvarpið hafi fengið upplýsingar um álitið.„Það er fullkomnlega tilhæfulaust,“ segir Helgi og bætir við að óskað hafi verið eftir því að frétt RÚV um málið yrði fjarlægð þar sem álitið hafi verið birt fyrir mistök. Á vef RÚV kemur fram að ekki hafi verið orðið við þeirri beiðni.Jón Pétursson, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins sagðist ekki getað gefið upplýsingar um hinar nýju upplýsingar sem fjórmenningarnar minnast á í yfirlýsingunni, þegar eftir því var leitað í kvöld.
Alþingi Miðflokkurinn Upptökur á Klaustur bar Tengdar fréttir Siðanefnd Alþingis telur samræðurnar á Klaustri ekki einkasamtal Siðanefnd Alþingis hefur skilað forsætisnefnd áliti vegna Klaustursmálsins svokallaða. Er það mat meirihluta nefndarinnar að samræðurnar sem fóru fram á barnum Klaustri á milli sex þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins geti ekki talist einkasamtal. 26. mars 2019 19:41 Persónuvernd óskar eftir upptökum úr eftirlitsmyndavélum Klausturs Persónuvernd hefur óskað eftir því við Klaustur Bar að fá afhentar upptökur úr eftirlitsmyndavélum staðarins frá 20. nóvember síðastliðnum þegar sex þingmenn ræddu þar saman og Bára Halldórsdóttir tók samræðurnar upp. 6. febrúar 2019 15:14 Senda formlegt erindi til siðanefndar vegna Klaustursmálsins Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna og Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem skipuð voru sem auka varaforsetar Alþingis til að fjalla um Klaustursmálið, senda nú í kvöld formlegt erindi til siðanefndar Alþingis um að nefndin taki málið til skoðunar. Þetta staðfestir Steinunn Þóra í samtali við fréttastofu. 4. febrúar 2019 18:27 Segja Báru hafa ákveðið dulargervi sitt áður en hún mætti á Klaustur Þetta kemur fram í bréfi sem Reimar Pétursson lögmaður þingmannanna hefur sent Persónuvernd og fréttastofa hefur undir höndum. 5. febrúar 2019 07:44 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira
Siðanefnd Alþingis telur samræðurnar á Klaustri ekki einkasamtal Siðanefnd Alþingis hefur skilað forsætisnefnd áliti vegna Klaustursmálsins svokallaða. Er það mat meirihluta nefndarinnar að samræðurnar sem fóru fram á barnum Klaustri á milli sex þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins geti ekki talist einkasamtal. 26. mars 2019 19:41
Persónuvernd óskar eftir upptökum úr eftirlitsmyndavélum Klausturs Persónuvernd hefur óskað eftir því við Klaustur Bar að fá afhentar upptökur úr eftirlitsmyndavélum staðarins frá 20. nóvember síðastliðnum þegar sex þingmenn ræddu þar saman og Bára Halldórsdóttir tók samræðurnar upp. 6. febrúar 2019 15:14
Senda formlegt erindi til siðanefndar vegna Klaustursmálsins Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna og Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem skipuð voru sem auka varaforsetar Alþingis til að fjalla um Klaustursmálið, senda nú í kvöld formlegt erindi til siðanefndar Alþingis um að nefndin taki málið til skoðunar. Þetta staðfestir Steinunn Þóra í samtali við fréttastofu. 4. febrúar 2019 18:27
Segja Báru hafa ákveðið dulargervi sitt áður en hún mætti á Klaustur Þetta kemur fram í bréfi sem Reimar Pétursson lögmaður þingmannanna hefur sent Persónuvernd og fréttastofa hefur undir höndum. 5. febrúar 2019 07:44