Ætlar ekki í framboð en er ekki á förum Samúel Karl Ólason skrifar 5. mars 2019 08:38 Hillary Clinton segir mikið í húfi í komandi forsetakosningum. AP/Kathy Willens
Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra og forsetaframbjóðandi, segist ekki ætla að bjóða sig aftur til embættis forseta Bandaríkjanna. Hins vegar segist hún ekki „vera á förum“ og hún ætli að halda áfram vinnu sinni og að berjast fyrir þeim málefnum sem hún trúi á. Þessu lýsti Clinton yfir í viðtali í gærkvöldi en frambjóðendum í forvali Demókrataflokksins fer hratt fjölgandi.Í áðurnefndu viðtali lýsti Clinton yfir áhyggjum af stöðu stjórnmála í Bandaríkjunum og þá sérstaklega af aukinni skotgrafapólitík og öfgum. Hún sagðist ætla að vinna með frambjóðendum Demókrataflokksins. „Ég vil vera viss um að fólk skilji að ég ætla að halda áfram að tjá mig. Ég er ekki að fara neitt,“ sagði Clinton. Hún sagði mikið í húfi í Bandaríkjunum og hefur hún áhyggjur af ástandinu eins og það er. Hún sagðist aldrei hafa séð annað eins ástand í Bandaríkjunum og nú. „Ég er að velta vöngum yfir því hvernig við byrjum að tala saman og hlusta á hvort annað á nýjan leik.“ Clinton sagðist ekki telja að hún myndi bjóða sig fram til einhvers opinbers embættis á nýjan leik. Hún hefur þó rætt við nokkra af frambjóðendum Demókrataflokksins og ráðlagði þeim að ganga ekki að neinu vissu í komandi kosningum.
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Flugferðum aflýst Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Innlent „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Innlent Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Sjá meira