Skoðun

Ónæmi og óþarfi

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Samráð er hafið um frumvarpsdrög atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra sem tekur til breytinga á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Hér er um að ræða viðbragð stjórnvalda við dómum Hæstaréttar Íslands og EFTA-dómstólsins um að núverandi fyrirkomulag leyfisveitinga fyrir innflutningi kjöts og eggja, og frystiskyldu kjöts, brjóti í bága við EES-samninginn.

Frumvarpið er yfirgripsmikið; markmið þess og aðferðir virðast rækilega rökstudd. Að auki virðist, miðað við greinargerð frumvarpsins, að nokkuð víðtækt samráð hafi átt sér stað við ritun þess, þar á meðal um myndun verkefnastjórnar um nauðsynlegar mótvægis­aðgerðir sem stjórnvöld munu þurfa að grípa til með þessum breytingum. Í þeim hópi er að finna fulltrúa stjórnvalda, bændasamtaka og atvinnulífsins.

Með breytingum er áætlað að ábati neytenda verði tæpar 900 milljónir króna á ári, á meðan áætlaður heildarsamdráttur í tekjum innlendra framleiðenda landbúnaðarafurða verði allt að 600 milljónum króna á ársgrundvelli. Að auki felst ábati neytenda í betra úrvali matvæla og meiri samkeppni á matvælamarkaði.

Hins vegar er efnahagslegur ábati neytenda á engan hátt það mikilvægasta í þessu samhengi. Ógnin sem felst í auknu sýklalyfjaónæmi er ein sú alvarlegasta sem blasir við mannkyni og líkur eru á að um miðja öld verði ónæmi einhver mesta áskorun sem nútíma læknavísindi hafa þurft að takast á við. Margþættar ástæður búa að baki útbreiðslu sýklalyfjaónæmis, þar á meðal er ofnotkun sýklalyfja í almennri heilbrigðisþjónustu og búfjárframleiðslu. Sýklalyfjaónæmi á Íslandi er umtalsvert minna en gengur og gerist víðast hvar annars staðar, þennan árangur ber að vernda. En er það hægt með innflutningi á ferskum matvælum?

Útbreiðsla sýklalyfjaónæmis er óneitanlega fylgifiskur þeirra tíma sem við lifum, en með skilvirkum og vel fjármögnuðum mótvægisaðgerðum, eins og þeim sem tíundaðar eru í frumvarpinu, á að lágmarka þá áhættu. Athyglisvert er að á sama tíma og tekist er á um ferska matvöru þá hefur greið leið sýklalyfjaónæmra baktería til landsins með ferðamönnum fengið litla athygli. Þetta er hætta sem er til staðar og mun fara vaxandi á næstu árum en lítill áhugi virðist á því að vekja ferðamenn og ferðaþjónustufyrirtæki til umhugsunar um þetta.

Frumvarp atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra er nauðsynlegt viðbragð við skekkju sem leiðrétta þarf til að hlíta dómi EFTA, ellegar er hætta á neikvæðum áhrifum af aðild að EES. Þeir sem tala fyrir hagsmunum íslensks landbúnaðar ættu að horfast í augu við þessa staðreynd og þess í stað beina orku sinni og athygli að því að hvetja fólk til að kaupa frekar íslenskar vörur en aðrar. Það ætti ekki að vera flókið verk.

Fjórðung af heildarlosun gróðurhúsalofttegunda má rekja til framleiðslu og flutnings matvæla. Og á tímum þar sem heimsbyggðin hefur sameinast um að stemma stigu við allra verstu hörmungum hnattrænna loftslagsbreytinga með því að draga úr losun, þá skýtur skökku við að auka enn innflutning matvæla þegar höfuðáhersla ætti að vera á innlenda sjálfbærni í matvælaframleiðslu.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×