Skoðun

Hamilton vs. Loftsson

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Það leið ekki á löngu frá því að sjávar­útvegsráðherra undirritaði reglugerð sem heimilar áframhaldandi veiðar á langreyði og hrefnu árin 2019–2023 þar til stórir erlendir fjölmiðlar hófu umfjöllun um málið. Í þeim er veiðunum jafnan líkt við slátranir og fjöldamorð og með fréttunum fylgja grafískar myndir af verkun hvalanna undir berum himni í Hvalfirði. Ráðherra kveðst keikur byggja ákvörðun sína á ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða. Fræðimenn gagnrýndu skýrsluna harðlega og ferðaþjónustan tók undir.

?Furðu sætir að jafn umdeild ákvörðun sé byggð á jafn veikum grunni og raun ber vitni þegar orðspor Íslands í útlöndum er undir. Ísland hefur skotist upp á stjörnuhimininn á síðustu árum, ekki síst fyrir tilstilli samfélagsmiðla. Fyrir vikið eigum við verðmætt vörumerki – merki sem þarf að umgangast af varúð á tímum sem ein færsla frá áhrifamiklum aðila á samfélagsmiðlum getur stofnað umfangsmiklum viðskiptahagsmunum í hættu á augabragði. Slíka áhættu er erfitt að greina með Excel-æfingum.

Gott dæmi um þetta er færsla breska ökuþórsins Lewis Hamilton á Instagram í gær þar sem hvalveiðum Íslendinga er mótmælt. Tæplega ein milljón af tíu milljónum fylgjenda Hamiltons hafði brugðist við færslunni aðeins örfáum klukkustundum eftir að hún birtist. Stjórnvöldum ætti einnig að vera minnisstæð viðbrögð bandarísku verslunarkeðjunnar Whole Foods fyrir fáeinum árum við hvalveiðibröltinu og ákvörðun kanadíska matvælarisans High Liner Foods um að hætta viðskiptum með íslenskan fisk við HB Granda vegna tengsla fyrirtækisins við eiganda Hvals hf. og þáverandi stjórnarformanns og hluthafa í HB Granda. Líklega er einungis tímaspursmál hvenær aðrar stórverslanir og dreifingaraðilar vestanhafs feta í þau fótspor.

?Stór hluti heimsbyggðarinnar og æ fleiri Íslendingar líta á hvalveiðar sem dýraníð. Alþjóðlegir samningar banna veiðarnar enda þykja veiðiaðferðirnar frumstæðar og drápstækin ófullkomin. Dýrin engjast um svo mínútum skiptir eftir sprengiskutla áður en þau eru dregin til lands og verkuð í trássi við gildandi reglugerðir. Jafnframt verður ekki séð að traustur efnahagslegur grundvöllur sé fyrir veiðunum enda gat Hvalur hf. ekki nýtt sér veiðiheimildir sínar í tvö ár vegna viðskiptahindrana á langreyðarafurðum. Áhættan með veiðunum er mikil en ávinningurinn lítill sem enginn.

Líklega eru kjósendur Vinstri grænna með mest óbragð í munni um þessar mundir. Nú eru hvalveiðarnar í þeirra boði. Hvern hefði grunað að það yrði á vakt umhverfisverndarsinnans Katrínar Jakobsdóttur og fyrrverandi aktívistans Guðmundar Inga Guðbrandssonar sem þetta afbrigðilega áhugamál Kristjáns Loftssonar gengur í endurnýjun lífdaga?




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×