Ók ölvaður undir stýri á kyrrstæðar bifreiðar Birgir Olgeirsson skrifar 17. febrúar 2019 07:17 Um áttatíu mál skráð hjá lögreglu í nótt. Vísir/Vilhelm
Rúmlega áttatíu mál voru skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 19 í gærkvöldi og til hálf sjö í morgun. Lögreglan handtók tvo karlmenn á þrítugsaldri í hverfi 105 grunaða um sölu og dreifingu fíkniefna. Þetta átti sér stað um klukkan ellefu í gærkvöldi og voru mennirnir vistaðir í fangageymslu. Lögreglan handtók erlendan karlmann í hverfi 210 grunaðan um þjófnað í verslun um klukkan átta í gærkvöldi. Maðurinn framvísaði einnig fölsuðum skilríkjum. Rétt eftir miðnætti var tilkynnt um ölvaðan mann sem hafði skemmt skilti á skyndibitastað í miðbænum og síðan hlaupið í burtu. Lögreglan fann hann skömmu síðar og handtók hann en vegna ástands og dólgsláta var hann vistaður í fangageymslu. Á þriðja tímanum í nótt var ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Áður hafði verið tilkynnt um að hann hefði ekið á brott eftir árekstur við kyrrstæðar bifreiðar. Skemmdir á þeim bifreiðum voru töluverðar en maðurinn var vistaður í fangageymslu. Alls voru átta ökumenn stöðvaðir í nótt grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Lögreglumál Samgönguslys Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Hreyfingar mælast og aukin vöktun Innlent Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Erlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Fleiri fréttir Á áttunda tug taka afstöðu til sakar í Landsbankamálinu Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Sjá meira