Skoðun

Skólinn, birtan og klukkan

Kristín Bjarnadóttir skrifar
Allt fram á tíunda áratug tuttugustu aldar þótti nauðsynlegt að tvísetja skóla. Hvorki var þá forgangsmál að byggja skólahúsnæði né var unnt að sjá kennurum fyrir fullu starfi við að kenna einum 20–25 barna hópi. Þá þurfti að byrja snemma á morgnana því að skólastarfið stóð yfir fram til kl. fimm eða sex síðdegis.

Á sjötta áratugnum voru barnaskólar, til dæmis Austurbæjarskólinn, þrísettir fyrir yngstu börnin. Fyrsti hópurinn kom laust fyrir níu, annar á tólfta tímanum og sá þriðji laust fyrir klukkan tvö síðdegis. Þá var vetrartími frá fyrsta vetrardegi. Af þessu sést að jafnvel á tíma, þegar skólum var haldið í kreppu húsnæðisleysis, var minnstu börnunum hlíft eins og kostur var við myrkrinu. Þau komu í skólann um það bil hálfri annarri klukkustund nær dagrenningu en nú gerist.

Nú eru aðrir tímar. Skólar eru einsetnir og reglulegu skólastarfi er víðast lokið upp úr klukkan tvö síðdegis. Nú er lag að gera róttækar breytingar á vinnulagi skólanna og margra landsmanna um leið. Annars vegar að hefja starf grunnskóla um klukkan níu að morgni. Hins vegar að stilla klukkuna sem næst sólartíma og miða allt árið við lengdarbauginn 15° vestlægrar lengdar sem liggur um Fljótsdalshérað í stað þess að miða við tíma kenndan við Greenwich í London.

Margar mótbárur munu heyrast við þessari tillögu. Ein er sú að foreldrar hefji vinnu snemma á morgni og muni ekki geta komið börnunum af stað í skólann á réttum tíma. Því er til að svara að margir foreldrar þurfa ekki að hefja störf svo snemma. Þeir sem hafa sveigjanlegan vinnutíma hafa jafnvel kosið að hefja sína vinnu snemma barnanna vegna. Verslanir opna margar ekki fyrr en tíu eða ellefu og starfsfólk þar er ekki bundið af fótaferðartíma fyrir kl. 7 að morgni.

Rétt er að geta þess að til eru framhaldsskólar sem hafa gert tilraun til að hefja reglulega kennslu kl. níu, en telja reynsluna vera að það skipti engu máli. Foreldrar séu of snemma á bak og burt til að ýta við unglingunum. Því er til að svara að margir nemendur á framhaldsskólaaldri eru miklar svefnpurkur vegna þess þroska sem þeir eru að taka út og tilraunin er því ekki marktæk.

Miklu fremur ætti að hugsa um yngstu börnin sem þurfa að paufast í skólann í myrkrinu. Ekki verður myrkrið forðast á öllum árstímum en sem betur fer fellur jólafrí saman við svartasta skammdegið. Þegar börnin koma aftur í skólann viku af janúar verður birting laust fyrir kl. níu og sólris upp úr kl. tíu væri klukkunni breytt. Svo færast þessir tíma fram með hverri viku nýs árs.

Höfundur er fyrrverandi prófessor.




Skoðun

Sjá meira


×