Skoðun

Loftslagsbreytingar og Háskóli Íslands

Aðalbjörg Egilsdóttir og Ásmundur Jóhannsson skrifar
Eitt stærsta vandamál 21. aldarinnar er hlýnun jarðar. Rannsóknir vísindamanna á hlýnun jarðar vegna gróðurhúsalofttegunda hafa leitt í ljós að hún er af manna völdum og að róttækra aðgerða sé þörf viljum við hægja á breytingunum sem eru nú þegar byrjaðar. Mikilvægt er að allir leggi sitt af mörkum, en sem stærsta menntastofnun og einn stærsti vinnustaður landsins á Háskóli Íslands að vera leiðandi í úrbótum í umhverfismálum.

Stefna Röskvu í umhverfismálum er metnaðarfull og horfir til margra vinkla ógnarinnar sem síaukin losun gróðurhúsalofttegunda er. Stefnt er að minni matarsóun innan skólans með því að selja vörur á síðasta séns með afslætti, minna kolefnisfótspori með því að hvetja til fjarfunda frekar en kolefnisfrekra fluga til annarra landa og því að gera öllum nemendum skólans auðveldara að nýta almenningssamgöngur, hjól eða tvo jafnfljóta sem ferðamáta.

Ein stærsta breytingin sem við viljum sjá í umhverfismálum háskólans er að nemendur og starfsmenn noti almenningssamgöngur í eins miklum mæli og mögulegt er en um 66% af kolefnisfótspori háskólans er vegna notkunar einkabílsins. Í því skyni höfum við komið fram með hugmyndina um samgöngukort að fyrirmynd U-pass, sem er þekkt í mörgum skólum í Norður-Ameríku. Fyrir utan að vera umhverfisvænn kostur væri slíkt kort hagkvæmt fyrir stúdenta og myndi minnka bílaumferð til og frá háskólasvæðinu til muna. Draumurinn er að með slíku korti fengju nemendur aðgang að strætó, hjólaleigu og samnýtingu bíla.

Með góðu samstarfi við marga, m.a. Félagsstofnun stúdenta, höfum við náð árangri síðustu tvö ár en erum hvergi nærri hætt. Nú eru til sölu græn kaffikort í Hámu, sem gefa afslátt af kaffi og te í fjölnota kaffimálum, loksins er hægt að endurvinna málma innan háskólans og þjónustu næturstrætó verður haldið áfram eftir mikinn þrýsting. Auk þessa hefur úrval á vegan fæði aukist og hjólaskýli hefur verið byggt fyrir framan VR-II en fleiri hjólaskýli eru í kortunum á næstu mánuðum.

En hvernig förum við að því að koma breytingum eins og samgöngukorti í gegn? Breytingum sem hefðu þurft að gerast helst fyrir mörgum árum? Svarið er róttækni. Róttækar aðgerðir eru eitthvað sem Röskva er alls ekki hrædd við og við þurfum þær til að sjá breytingar á umhverfismálum háskólans.

Kjósið umhverfismál og háskóla fyrir alla. Kjósið Röskvu.

Höfundar stunda nám við Háskóla Íslands og skipa 1. og 2. sæti á lista Röskvu hjá Verkfræði- og náttúrúvísindasviði hjá Háskóla Íslands.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×