Leggja til bann á plastburðarpokum, plastborðbúnaði, plaströrum og öðru einnota plasti Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 1. nóvember 2018 14:30 Lagt er til að ráðist verði í markvissa vitundarvakningu um ofnotkun á plastvörum. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Samráðsvettvangur um aðgerðaráætlun í plastmálefnum hefur skilað til umhverfis- og auðlindaráðherra tillögu að átján þrepa aðgerðaráætlun um hvernig draga megi úr notkun plats, bæta endurvinnslu þess og takast á við plastmengun í hafi. Meðal annars er lagt til að ráðist verði í þriggja þrepa áætlun um burðarpoka úr plasti sem endi með því 1. jan 2021 að óheimilt verði að selja eða afhenda plastpoka í verslunum. Þá er lagt til að hafist verði handa við að innleiða tilskipun ESB um að draga úr umhverfisáhrifum plasts sem fyrst eftir að slík tilskipun hefur verið samþykkt í Evrópu en áætlað er að það verði á næsta ári. Lagt er til að banni við plastdiskum, plasthnífapörum, plaströrum og öðru einnota plasti, sem kveðið er á um í drögum að tilskipuninni, verði flýtt og það innleitt hér á landi frá og með 1. janúar 2020. Lagt er til að ráðist verði í markvissa vitundarvakningu um ofnotkun á plastvörum, komið verði á fót sérstökum rannsókna- og þróunarsjóði sem meðal annars styðji við nýjar lausnir sem komið geti í stað plasts, að leidd verði í lög skylda sveitarfélaga og rekstraraðila til að flokka úrgang og að flokkun úrgangs verði samræmd á landsvísu.Hreinlætisvörur sem innihalda örplast verði bannaðar Meðal annarra tillganga hópsins voru að lagt verði úrvinnslugjald á allt plast en ekki einungis umbúðaplast, að hreinsun frárennslis verði bætt til að minnka losun örplasts í hafið, enda sé skólp hvergi hreinsað á íslandi með tilliti til örplasts. Þá verði hreinlætisvörur sem innihalda örplast bannaðar árið 2020 með sama hætti og gert var á Bretlandi fyrr á þessu ári, staðið verði fyrir víðamiklu átaki um að hreinsa strendu rlandsins og að fyrirtækjum og rekstraraðilum verði með miðlægri upplýsingagjöf gert auðveldara fyrir við að velja umhverfisvænni lausnir fyrir rekstur sinn, til dæmis umhverfisvænni umbúðir undir tilbúna matvöru. Hópurinn leggur áherslu á að um tillögur sé að ræða en nánari útfærsla þeirra krefjist vandaðs undirbúnings og gott samráðsferli sé hluti þess. Tillögurnar fara nú í opið samráð og geta öll þau sem vilja gert athugasemdir við þær.Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra.Vísir/vilhelm„Tillögurnar sem ég fékk í dag eru blanda af hagrænum hvötum, banni, fræðslu og nýsköpun. Plastfjöllin okkar hækka stöðugt og ef fram heldur sem horfir verður árið 2050 meira plast í hafinu en fiskar. Við verðum að breyta þessu og þora að taka stór skref. Hér í dag hafa einmitt mikilvæg fyrstu skref verið stigin,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. Guðmundur Ingi skipaði starfshópinn í júlí. Í hópnum áttu sæti þrettán manns og í honum voru fulltrúar atvinnulífs sveitarfélaga, umhverfisverndarsamtaka, félagasamtaka, opinberra stofnana, Alþingis, ráðuneyta og fleiri. Hópnum var falið af ráðherra að taka til skoðunar hvaða rannsóknir og vöktun varðandi plast þurfi að ráðast í, koma með tillögur um þær stjórnvaldsaðgerðir sem æskilegt væri að koma í framkvæmd og koma með tillögur um hvernig best verði stuðlað að nýsköpun í vörum sem koma í stað plastnotkunar. Í sáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um átak gegn plasti og að hreinsa plast úr umhverfinu og skipan starfshópsins var liður í að fylgja því eftir. Þá hefur ráðherra lagt áherslu á að plastmál séu eitt af hans forgangsmálum. Samráðshópinn skipuðu: Án tilnefningar Laufey Helga Guðmundsdóttir, formaður, umhverfis- og auðlindaráðuneyti, Samkvæmt tilnefningu Úrvinnslusjóðs Guðlaugur G. Sverrisson Samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga Lúðvík E. Gústafsson Samvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins Lárus M. K. Ólafsson Samkvæmt tilnefningu Umhverfisstofnunar Elva Rakel Jónsdóttir Samkvæmt tilnefningu Matís ohf. Hrönn Jörundsdóttir Samkvæmt tilnefningu Neytendasamtakanna Þórey S. Þórisdóttir Samkvæmt tilnefningu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands Páll Árnason Samkvæmt tilnefningu fjármála- og efnahagsráðuneytis Benedikt S. Benediktsson Samkvæmt tilnefningu umhverfisverndarsamtaka Rannveig Magnúsdóttir Samkvæmt tilnefningu Hafrannsóknastofnunar Eydís Salome Eiríksdóttir Samkvæmt sameiginlegri tilnefningu þingflokka stjórnarflokka Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Samkvæmt sameiginlegri tilnefningu þingflokka stjórnarandstöðuflokka Guðmundur Andri Thorsson.
Neytendur Umhverfismál Mest lesið Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Viðskipti erlent „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Viðskipti innlent Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Viðskipti innlent Nova kaupir Ofar Viðskipti innlent Allt á uppleið á Grundartanga Viðskipti innlent Einn stofnenda ASOS fannst látinn Viðskipti erlent Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Neytendur Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Samstarf Fleiri fréttir „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Erla Ósk nýr formaður Jafnvægisvogarráðs Sjá meira