Fannst látinn í rústum húsanna í Marseille Atli Ísleifsson skrifar 6. nóvember 2018 13:02 Björgunarlið stóð fyrir mikilli leit í rústunum bæði í gær og nótt. AP/Claude Paris
Líkamsleifar manns hafa fundist í rústum húsanna þriggja sem hrundu í miðborg frönsku hafnarborgarinnar Marseille í gær. Björgunarlið stóð fyrir mikilli leit í rústunum bæði í gær og nótt. Christophe Castaner, innanríkisráðherra Frakklands, segir að milli fimm og átta manna sé enn saknað. Guardian segir frá. „Það mikilvægasta er að bjarga lífum. Þegar við hófum björgunarstarf fundum við nokkrar loftleiðir í rústunum sem þýðir að enn er von um að finna fólk á lífi,“ segir Castener sem er staddur í Marseille. Ekki liggur fyrir um ástæður þess að byggingarnar hrundu, en vitað er að þær voru í slæmu ástandi og voru stórar sprungur á framhlið hússins. Borgaryfirvöld í Marseille hafa síðan 2015 unnið að því að gera endurbætur á byggingum í miðborginni. Samkvæmt skýrslu frá 2015 búa 100 þúsund manns í byggingum þar sem öryggi er talið ábótavant. Uppfært 13:13: Lögregla í Frakklandi hefur staðfest að annað lík hafi fundist í rústum húsanna. Þetta kemur fram í frétt Sky News.
Frakkland Tengdar fréttir Bygging hrundi í miðborg Marseille Tveir slösuðust þegar sex hæða bygging hrundi í miðborg frönsku borgarinnar Marseille í morgun. 5. nóvember 2018 11:14 Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Fleiri fréttir Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Sjá meira
Bygging hrundi í miðborg Marseille Tveir slösuðust þegar sex hæða bygging hrundi í miðborg frönsku borgarinnar Marseille í morgun. 5. nóvember 2018 11:14