Jakob bjargaði Borås frá sumarfríi Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 17. apríl 2018 18:55 Jakob í leik með Borås. vísir/getty
Þrír þristar í röð frá Jakobi Erni Sigurðarsyni hjálpuðu endurkomu Borås gegn Norrköping sem kom í veg fyrir að Borås færi í snemmbúið sumarfrí í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Fyrir leikinn í kvöld var Norrköping með 2-0 forystu í einvígi liðanna í undanúrslitunum. Leikurinn var lengst af nokkuð jafn en heimamenn í Norrköping áttu þó nokkur áhlaup og komust í tvígang í átta stiga forystu. Sjö stiga munur var á liðunum þegar þrjár mínútur voru liðnar af fjórða leikhluta þegar íslenski landsliðsmaðurinn setti þriggja stiga skot. Norrköpping svaraði með tveimur stigum áður en Jakob Örn setti aðra tvo þrista í næstu tveimur sóknum Borås og jafnaði leikinn. Eftir það var leikurinn í járnum. Þegar átta sekúndur voru eftir var brotið á Jakobi Erni og hann fór á vítalínuna og kom Borås í fjögurra stiga forystu. Það urðu síðustu stig leiksins og mikilvægur útisigur í höfn sem tryggir Borås að minnsta kosti einn leik í viðbót. Jakob endaði með 15 stig, sex fráköst og þrjár stoðsendingar.
Körfubolti Mest lesið Raygun er hætt: Vildi það ekki en verður að hætta Sport Sjáðu klúðrið sem stjóri Villa kallaði „stærstu mistök“ sem hann hefur séð Enski boltinn Þurftu að sauma sautján spor í andlit Barcelona stráksins Fótbolti Myndir: Skiltin fuku um koll fyrir leikinn mikilvæga í Kópavogi Fótbolti Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ Handbolti „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ Handbolti CrossFit íþróttafólkið græddi á sigri Trump Sport Leikbann Kudus lengt í fimm leiki Enski boltinn Tommi með Nablann í bandi í Keflavík Körfubolti Slot henti bæði Mourinho og Ancelotti úr efsta sætinu Enski boltinn Fleiri fréttir „Þessi takki sem allir halda að Valur sé að fara kveikja á er ekki til“ Ekki spilað eina mínútu en dæmdur í bann Tommi með Nablann í bandi í Keflavík Klikkaði ekki á skoti í fyrsta leik og var stigahæstur „Þessi tími hefur liðið mjög hægt fyrir mér“ Pavel um varnarleik Keflavíkur: Á að særa stolt þitt Jordan-treyja seldist á 642 milljónir króna Fjórði stigahæsti kaninn en sá með lélegustu skotnýtinguna Tvær stórbrotnar körfur Ja Morant „Þurfum að passa upp á það að hafa gaman“ Vandræði utan vallar höfðu sitt að segja Popovich frá um óákveðinn tíma vegna veikinda Wendell Green rekinn frá Keflavík Sá langelsti stóð upp úr í Suðurlandsslag Erfitt hjá „sultunni“ Joel Embiid NBA-stjörnurnar þurftu að taka lestina á leikinn sinn Hannes í leyfi Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 92-87 | Stólarnir fyrstir til að vinna Stjörnuna Alba Berlin í vandræðum og stórleikur Martins dugði ekki til sigurs Mættur til tengdó og gírar sig upp fyrir Síkið Framlenging Körfuboltakvölds: Njarðvík getur orðið Íslandsmeistari eins og Valur Tvö lið enn ósigruð og Thunder að eiga bestu byrjun í sögu félagsins Réðst á blaðamann vegna ummæla um látinn bróður hans og nýfæddan son „Það þarf svo margt að ganga upp til að þeir vinni“ Minnkuðu muninn um tuttugu stig á þremur mínútum gegn gamla liði Elvars Hafnar því að hafa elt Morris: „Ég var ekki með nein leiðindi“ Segir Friðrik hafa elt sig og áreitt eftir leik: „Mér fannst ég ekki örugg“ Uppgjörið: Keflavík - KR 94-88 | Langþráður Keflavíkursigur „Vildi sýna þeim að þeir væru ekki að fara ná þessu svona auðveldlega“ Uppgjörið: Þór Þ. - Haukar 82-81 | Þórsarar gerðu Haukum grikk með naumum sigri Sjá meira