68 létust í eldsvoða á lögreglustöð Sylvía Hall skrifar 29. mars 2018 09:52 Ástvinir söfnuðust saman fyrir utan lögreglustöðina í von um upplýsingar. Vísir/Getty
68 létust í eldsvoða á lögreglustöð í borginni Valencia í Venesúela á miðvikudag eftir að fangar gerðu tilraun til flótta. Fangarnir lögðu eld að dýnum sínum eftir að lögreglumaður var skotinn í fótinn og dreifðist eldurinn hratt um stöðina. Stærstur hluti hinna látnu voru fangar, en einnig létust tvær konur sem höfðu verið að heimsækja ástvini. Erfiðlega gekk að slökkva eldinn og þurftu slökkviliðsmenn að brjóta niður veggi stöðvarinnar til að hjálpa fólki út. Hópur fólks safnaðist saman fyrir utan lögreglustöðina í gær til þess að krefjast upplýsinga um afdrif ættingja og ástvina og varð öngþveitið svo mikið að lögregla þurfti að beita táragasi. Ættingjar segjast engar upplýsingar hafa fengið í kjölfar eldsvoðans. Fangelsisaðstæður í landinu hafa verið mikið áhyggjuefni, en mörg þeirra eru yfirfull og fangauppreisnir algengar. Ríkisstjóri Carabobo-fylkis segir að málið verði rannsakað til hins ítrasta.
Venesúela Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira