Lífið

„Ég samþykki ekki nauðgun“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Meryl segir þær Rose vera í sama liði.
Meryl segir þær Rose vera í sama liði. Vísir / Getty Images

„Það var sárt að Rose McGowan hafi ráðist á mig í fyrirsögnum helgarinnar, en mig langar að láta hana vita að ég vissi ekki af afbrotum Weinsteins, ekki á tíunda áratugnum þegar hann réðst á hana eða á öðrum áratugum þegar hann réðst á aðra,“ skrifar leikkonan Meryl Streep í yfirlýsingu til fréttamiðilsins Huffington Post. Meryl sendi frá sér yfirlýsingu eftir að leikkonan Rose McGowan sakaði hana um að segja ekkert og sitja hjá, þegar hún vissi af hegðun framleiðandans Harvey Weinstein, sem hefur verið sakaður um kynferðislega áreitni og -ofbeldi af fjölmörgum konum í kvikmyndabransanum. Rose sakaði Meryl um þetta í tísti, sem hefur síðan verið eytt.

Meryl segist ekkert hafa vitað af athæfi framleiðandans.

„Ég hafði ekki viljandi hljótt. Ég vissi ekki af þessu. Ég samþykki ekki nauðgun. Ég vissi ekki af þessu. Ég vil ekki að ráðist sé á ungar konur. Ég vissi ekki að þetta væri að gerast.“

Rose taldi að Meryl hefði staðið hjá aðgerðarlaus á meðan konur í Hollywood voru beittar ofbeldi af Harvey Weinstein.Vísir / Getty Images

Við vissum ekki að hann keypti þögn kvenna

Í yfirlýsingunni skrifar Meryl enn fremur að hún viti ekki hvar Harvey eigi heima né að hann hafi heimsótt hana á heimili sitt. 

„Hann hefur aldrei boðið mér uppá hótelherbergi sitt. Ég hef einu sinni farið á skrifstofuna hans til að fara á fund með Wes Craven vegna kvikmyndarinnar Music of the Heart árið 1999. HW (Harvey Weinstein) dreifði myndum sem ég gerði með öðru fólki. HW var ekki kvikmyndagerðarmaður; hann var oft framleiðandi, aðallega markaðssetti hann myndir sem aðrir gerðu - sumar voru frábærar, aðrar ekki góðar. En það vissu ekki allir leikarar, leikkonur og leikstjórar sem gerðu myndir sem HW dreifði að hann beitti konur ofeldi, eða að hann hafi nauðgað Rose á tíunda áratug síðustu aldar og öðrum konum fyrir og eftir, þar til þær sögðu okkur það. Við vissum ekki að hann, og vitorðsmenn hans, keypti þögn kvenna.“

Vonar að Rose lesi pistilinn 

Meryl ætlar að gera allt sem í hennar valdi stendur til að berjast gegn þöggun í Hollywood og vonar að Rose taki henni sem jafningja, ekki andstæðingi.

„Ég var að vona að hún myndi vilja hlusta á mig. Hún vildi það ekki, en ég vona að hún lesi þetta. Mér finnst svo leiðinlegt að hún sjái mig sem andstæðing því við erum báðar, ásamt öllum konunum í okkar fagi, að snúast gegn sama ósveigjanlega fjandmanninum: óbreyttu ástandi sem vill hverfa aftur til slæmu, gömlu daganna þegar konur voru notaðar, þær beittar ofbeldi og neitað inngöngu í hóp þeirra sem ákvarðanir taka í efstu stigum bransans.“

Þegar þetta er skrifað hefur Rose ekki svarað Óskarsverðlaunaleikkonunni.


Tengdar fréttir

Sýna samstöðu í svörtu

Leikkonur í Hollywood hafa ákveðið að klæðast svörtu á Golden Globes verðlaunahátíðinni í janúar til að sýna samstöðu gegn kynbundnu ofbeldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.