Móður Ellu Dísar dæmdar bætur vegna gáleysis stjórnenda Sinnum Birgir Olgeirsson skrifar 5. október 2017 21:13 Ragna Erlendsdóttir höfðaði mál gegn Sinnum ehf. og Reykjavíkurborg vegna andláts dóttur sinnar. Vísir
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt þjónustufyrirtækið Sinnu ehf. til að greiða Rögnu Erlendsdóttur þrjár milljónir króna í bætur. Ragna hafði stefnt fyrirtækinu og Reykjavíkurborg vegna stórkostlegs gáleysis sem að endingu hafi valdið því að dóttir hennar, Ella Dís Laurens, lést árið 2014. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Reykjavíkurborg af kröfum Rögnu en hún hafði farið fram á að Sinnum efh. og Reykjavíkurborg yrðu dæmd til að greiða henni fimm milljónir króna í bætur óskipt. Var það mat Héraðsdóms Reykjavíkur að andlát Ellu Dísar yrði rakið til stórfellds gáleysis stjórnenda Sinnum ehf., með því að setja ófaglærðan starfsmann í aðstæður sem hann gat ekki ráðið við.Með ólæknandi taugasjúkdóm Ella Dís var sjö ára gömul þegar hún lést 5. júní árið 2014 en frá 15 mánaða aldri hafði hún þjáðst af ólæknandi taugasjúkdómi sem olli henni máttleysi, öndunarerfiðleikum, heyrnarskaða, næringarerfiðleikum og fleira. Ragna fór með Ellu Dís til Bretlands til læknisrannsóknar þegar hún var hætt að geta andað að sjálfsdáðum í júní árið 2008. Þá fór hún einnig með Ellu til læknis í Bandaríkjunum og í kjölfarið búið með hana í Bretlandi ásamt breskum föður hennar þar til á árinu 2011, þegar mæðgurnar komu aftur til Íslands. Ragna fór með Ellu á ný til Bretlands í árslok árið 2011 og loks, að fenginni heimild breskra barnaverndaryfirvalda, komið með barnið til Íslands að nýju 13. ágúst árið 2012. Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hafði áður haft afskipti af málefnum barnsins og var Ella Dís vistuð utan heimilis á vegum Reykjavíkurborgar frá heimkomu mæðgnanna, en Ragna hafði umgengni við hana með takmörkunum. Dvaldi Ella Dís í fyrstu ýmist í Rjóðri, hvíldar- og endurhæfingarheimili fyrir langveik og fötluð börn, eða á Barnaspítala Hringsins. í júlí árið 2013 flutti hún í Móvað, heimili fyrir langveik og fötluð börn.Ófaglærður starfsmaður sinnti afleysingum Vegna skólagöngu Ellu Dísar gerði skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar verksamning við Sinnum ehf., en fyrirtækið býður upp á fjölþætta velferðarþjónustu til einstaklinga. Ella Dís var með sérstakan vinnustól í skólanum, kennslan fór fram í opinni skólastofu en útbúin var aðstaða inn af skólastofunni fyrir Ellu Dís og hennar tæki, auk sjúkrarúm ef hún yrði of þreytt og þyrfti að hvíla sig. Ella Dís var tengd við öndunarvél í gegnum barkatúbu í hálsi en hún var einnig tengd mettunarmæli sem sýndi súrefnismettun í blóði og hjartslátt. Að jafnaði fékk Ella Dís fylgd í skólann með þroskaþjálfa, en þriðjudagsmorguninn 18. mars 2014 forfallaðist þroskaþjálfinn vegna veikindi. Var ófaglærður starfsmaður Sinnu ehf. fenginn í staðinn en sá hafði áður fylgt Ellu Dís í skóla í afleysingum og þekkti Ellu Dís.Öndunartúba ekki á sínum stað Um það leyti sem starfsmaðurinn flutti Ellu Dís úr hjólastól í vinnustól í skólanum mun súrefnismettun hafa fallið og hjartsláttur hækkað. Reyndi starfsmaðurinn árangurslaust að nota sog- og hóstavél, auk þess að hringja í Neyðarlínuna eftir aðstoð. Sex mínútum síðar komu sjúkraflutningamenn á staðinn og var Ella Dís þá í öndunar- og hjartastoppi. Bráðatæknir bar fyrir dómi að hann hefði veitt því athygli að öndunartúban væri ekki á sínum stað í hálsi Ellu Dísar, hann hefði komið henni fyrir komið á öndun með belg. Endurlífgunartilraunin bar árangur og var Ella Dís flutt á bráðamóttöku barna og þaðan á gjörgæsludeild. Ragna sagði Ellu Dís hafa orðið fyrir miklum heilaskaða við atvikið og kvað hana eftir það aldrei hafa sýnt eðlileg viðbrögð fram að lífslokum þann 5. júní árið 2014.Dómurinn taldi verklag Sinnum laust í reipum Héraðsdómur Reykjavíkur taldi það hafið yfir vafa að þær heilsufarsástæður sem leiddu til lífsloka Ellu Dísar hafi verið afleiðing af því að hún varð fyrir alvarlegum súrefnisskorti 18. mars árið 2014. Benti dómurinn á að af framburði vitna mætti ráða að ýmislegt varðandi umönnun Ellu Dísar hafi verið laust í reipum. Þannig bendi frásagnir vitna til að ekki hafi verið skýrt kveðið á um hver þekking og reynsla starfsmanna þyrfti að vera, hver sæi um þjálfun þeirra og hver væri ábyrgur fyrir því að hún væri nægilega góð.Stórfellt gáleysi stjórnenda Dómurinn taldi að andlát Ellu Dísar yrði rakið til þess að stjórnendur Sinnum ehf. sýndu af sér stórfellt gáleysi með því að setja ófaglærðan starfsmann í aðstæður sem hann gat ekki ráðið við. Var af þeirri ástæðu fallist á að Sinnum ehf. bæri að greiða Rögnu Erlendsdóttur miskabætur upp á þrjár milljónir króna. Þá var Sinnum ehf. dæmt til að greiða Rögnu 800 þúsund krónur í málskostnað.
Tengdar fréttir „Ekki spurning um hvort heldur hvenær“ Ella Dís hefur ekki verið með meðvitund frá 18. mars. 24. maí 2014 09:15 Fór í skyndi með Ellu Dís á spítala í London Ragna Erlendsdóttir fór í skyndi með dóttur sína, Ellu Dís, til Englands í gærkvöldi. Ragna var ósátt við vinnubrögð lækna á Barnaspítala Hringsins og ákvað, án samráðs við íslenska lækna, að fara með dóttur sína á spítala í London. 22. nóvember 2010 09:27 Ella Dís er látin Ella Dís Laurens lést í kvöld á heimili sínu eftir að hafa verið komin heim til sín af sjúkrahúsi í síðustu viku. 5. júní 2014 22:04 Móðir Ellu Dísar stefnir borginni "Hættan á andnauð var stöðugt fyrir hendi enda hafði slíkt áður átt sér stað hjá umönnunaraðilum á vegum Reykjavíkurborgar.“ 23. október 2014 12:23 Mest lesið Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Hafna viðræðum til hægri Erlent Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Erlent Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Fleiri fréttir Stjórnarráðið beini auglýsingafé frá samfélagsmiðlum Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Áfall að sjá dæmdan kynferðisbrotamann fyrir utan heimilið Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Heimilislæknar minna ríkisstjórn á gefin loforð „Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi“ Ásmundur skipaður forseti Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Sjá meira
„Ekki spurning um hvort heldur hvenær“ Ella Dís hefur ekki verið með meðvitund frá 18. mars. 24. maí 2014 09:15
Fór í skyndi með Ellu Dís á spítala í London Ragna Erlendsdóttir fór í skyndi með dóttur sína, Ellu Dís, til Englands í gærkvöldi. Ragna var ósátt við vinnubrögð lækna á Barnaspítala Hringsins og ákvað, án samráðs við íslenska lækna, að fara með dóttur sína á spítala í London. 22. nóvember 2010 09:27
Ella Dís er látin Ella Dís Laurens lést í kvöld á heimili sínu eftir að hafa verið komin heim til sín af sjúkrahúsi í síðustu viku. 5. júní 2014 22:04
Móðir Ellu Dísar stefnir borginni "Hættan á andnauð var stöðugt fyrir hendi enda hafði slíkt áður átt sér stað hjá umönnunaraðilum á vegum Reykjavíkurborgar.“ 23. október 2014 12:23