Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Sunna Sæmundsdóttir skrifar 15. september 2026 11:47 Birgir Finnsson, slökkviliðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir mikinn reyk hafa verið í byggingunni þegar slökkvilið bar að. vísir/samsett Eldsupptök í Toppstöðinni í Elliðaárdal liggja ekki fyrir en slökkviliðsstjóri segir að umgangur virðist hafa verið um húsið sem eigi að vera mannlaust. Ekki er talið að um altjón sé að ræða og enn er stefnt að opnun miðstöðvar jarðaríþrótta í húsinu.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út að Toppstöðinni í Elliðaárdal í Reykjavík á sjöunda tímanum í gærkvöldi vegna eldsvoða. Birgir Finnsson, slökkviliðsstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir aðgerðir hafa gengið vel enda hefur áður verið farið í útköll í byggingunni sem einnig hefur verið nýtt til æfinga hjá slökkviliði. Þær hafi þó tekið sinn tíma þar sem reykurinn var mikill. „Það tók svolítinn tíma að komast inn og að eldsupptökunum og slökkva eldinn. En sem betur hafði hann ekki dreift mikið úr sér og var ekki í millilofti eða einhverju slíku,“ segir Birgir. Eldurinn var staðbundinn í lægri hluta byggingarinnar en Birgir segir upptökin ekki liggja fyrir. „En húsið á náttúrulega að vera mannlaust en það voru svona ummerki um að það hafi verið hægt að fara þarna inn og út. Og nú er bara lögreglan með vettvanginn til rannsóknar í dag.“ Ekki sé þó hægt að segja hvort eldurinn hafi kviknað af mannavöldum eða öðrum ástæðum og slökkvilið varð ekki vart við mannaferðir þegar komið var á vettvang. „Við höfum hins vegar farið þarna áður og fengið veður af því að einhverjir væru þarna inni og þetta er nú svona ákveðið vandamál þegar að hús standa tóm. Þó að eigendur reyni að leggja sig fram við að loka og tryggja að enginn sé að fara inn að þá eru einhverjir sem að sækja í það og finna sér skjól. Þannig að það svona veldur okkur alltaf áhyggjum þar sem þetta er líka stórt og mikið hús.“ Enn stefnt að miðstöð jaðaríþrótta Til stendur að opna miðstöð útivistar- og jaðaríþrótta í Toppstöðinni og í samtali við fréttastofu segir Hilmar Ingimundarson, sem stendur að baki verkefninu að enn standi til að opna hana í lok árs 2028. Samkvæmt fasteignaskrá hljóðar brunabótamat hússins upp á ríflega 1,2 milljarða króna. Birgir segir að ekki sé um altjón að ræða en umfangið liggur þó ekki fyrir. Asbest er í útveggjum hússins og því var haft samband við heilbrigðiseftirlit sem skoðaði aðstæður í gær um mun aftur gera það í dag. Birgir segir ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af því almennt en ráðleggur fólki þó að vera ekki á ferð við húsið að óþörfu. „Þarna eru auðvitað líka bara orðnar skemmdir á klæðningunni þannig að asbestið í raun og veru blasir við að hluta til. En asbest er víða í húsum og meðan það er ekki verið að eiga við það er það ekki talið hættulegt. En um leið og þú ferð eitthvað að rífa í það eða saga í það kemur úr því svona asbestryk sem er hættulegt. Þannig að það er auðvitað bara að húsið sé sem best lokað og fólk sé ekki að þvælast um það þar til að framkvæmdir hefjast eða ákvörðun verður tekin um hvað verður um húsið,“ segir Birgir.
Slökkvilið Reykjavík Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira