
Alexander Gauland, einn framámanna AfD flokksins ávarpaði stuðningsfólk sitt þegar línur tóku að skýrast í kvöld. Hann gerði fyrirætlanir flokksins á þinginu að umfjöllunarefni sínu: „Við munum elta þau uppi og við ætlum að endurheimta landið okkar.“
Það liggur fyrir að Angela Merkel á mikið og erfitt verk fyrir höndum. Þjóðernisflokkurinn AfD verður Merkel til trafala. Fyrirfram hefur flokkurinn gefið það út að með fyrstu verkum verði að koma á fót nefnd sem rannsaka eigi þá útlendingastefnu sem Merkel hefur rekið síðastliðin ár. Talsmenn flokksins segjast þess fullvissir að hún hafi brotið margvísleg lög og að það kalli á nánari eftirgrennslan að því er fram kemur á vef BBC.
Um sjö hundruð fylktu liði og mótmæltu þjóðernisflokknum fyrir utan kosningamiðstöð hans í kvöld. Fólkið söng hástöfum: „Allir Berlínarbúar hata AfD“ og „nasistasvín“. þá hafa ýmsir stjórnmálaskýrendur og álitsgjafar gagnrýnt flokkinn harðlega. Dirk Schuck, stjórnmálafræðingur við háskólann í Leipzig, sagði að það væri afar mikilvægt að láta í ljós óánægju því það sé ekkert eðlilegt við það að fasistaflokkur sé kominn inn á þýska þingið.

Á Twittersíðu sinni óskar Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi „bandamönnum sínum“ í AfD flokknum til hamingju með góðan árangur. Hún segir niðurstöður kosninganna auk þess vera til marks um vakningu evrópskra þjóða.
Á sama vettvangi tekur Geert Wilders, leiðtogi Frelsisflokksins í Hollandi í sama streng og Le Pen. Wilders tekur mið af árangri þjóðernissinnaðra flokka í síðustu kosningum í Hollandi, Frakklandi, Austurríki og Þýskalandi og segir skilaboðin vera skýr: „Við erum ekki íslamskar þjóðir.“
New York Times greinir frá viðbrögðum Merkel eftir kosningarnar en hún segir að það sé alveg ljóst að hún hafi búist við betri niðurstöðum í kosningunum. Hún segir aftur á móti að hið jákvæða sé að hennar flokkur muni leiða ríkisstjórnina. Hún ætlar að leggja sig fram við að hlusta á raddir þeirra sem kusu þjóðernisflokkinn Valkost fyrir Þýskaland (AfD) og reyna að ná þeim aftur á sitt band með því að „leysa vandamál, taka áhyggjur og ótta þeirra til skoðunar en umfram allt að gera það með því að ástunda góð stjórnmál.“
Fréttin hefur verið uppfærð.
PVV nr 2 in The Netherlands
— Geert Wilders (@geertwilderspvv) September 24, 2017
FN nr 2 in France
FPÖ nr 2 in Austria
AfD nr 3 in Germany
The message is clear.
We are no islamic nations.