Ríkið þarf að greiða lögreglufulltrúa sem var sakaður um spillingu milljónir í bætur Kjartan Kjartansson skrifar 29. september 2017 14:41 Innbyrðis deilur í fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu brutust meðal annars út í ásökunum um spillingu á hendur lögreglufulltrúa þar. Vísir/GVA
Fyrrverandi lögreglufulltrúi hjá fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem var sakaður um spillingu vann skaðabótamál gegn íslenska ríkinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ríkið þarf að greiða honum 2,2 milljónir í bætur. Lögmaður hans segir dóminn áfellisdóm yfir yfirstjórn lögreglunnar. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að ásakanir um að lögreglufulltrúinn hefði brotið alvarlega af sér í starfi hafi „alla tíð verið með öllu órökstuddar“. Þær hafi aðeins byggst á orðrómi og engu öðru. Ákvörðun yfirstjórnar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um að víkja honum frá störfum tímabundið í janúar í fyrra hafi verið ólögmæt. Málið gegn honum var fellt niður þar sem engar vísbendingar fundust um að hann hefði brotið af sér. Hann hafði verið sakaður um óeðlileg samskipti við uppljóstrara lögreglunnar og jafnvel um að hafa þegið milljónir í greiðslur frá honum. Auk skaðabótanna var ríkið dæmt til að greiða tvær milljónir króna í málskostnað. Kristján Thorlacius, lögmaður lögreglufulltrúans, segir við Vísi að dómurinn sé afdráttarlaus. Brottvikning hans hafi verið óþörf og ólögmæt. „Ég myndi segja að þetta væri gríðarlegu áfellisdómur yfir framgöngu yfirstjórnar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í málinu,“ segir hann.
Mest lesið Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Hafnaði úti í fjöru Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst Innlent Fleiri fréttir Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Sjá meira