Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. september 2026 11:30 Svona var umhorfs í Kambaskriðum í morgun. Myndin var fyrst birt á vef Austurfréttar. Hreinsa þurfti grjót af veginum um Kambaskriður austur af Breiðdalsvík í morgun. Íbúar hafa lýst yfir áhyggjum af veginum sem börnum er ekið eftir til og frá skóla á hverjum degi.
Austurfrétt greinir frá grjóthruninu og hefur eftir yfirverkstjóra hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði að starfsmaður Vegagerðarinnar hafi komið að grjótinu í morgun sem hafi í framhaldi verið hreinsað af verktaka. Hinrik Þór Einarsson, yfirverkstjóri hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði, segir við Austurfrétt að tveir til þrír steinanna hafi verið á stærð við þvottavélar og aðrir sex á stærð við örbylgjuofna. Vegurinn um Kambaskriður.Vegagerðin Á vef Vegagerðarinnar er varað við grjóthruni sem er sagt þekkt vandamál á svæðinu í haustrigningum. Austurfrétt rifjar upp að í apríl hafi skólaráð Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla sent frá sér opið bréf og krafist tafarlausra úrbóta á svæðinu. Kambaskriður eru hluti af veginum sem liggur milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar en kennsla fer til skiptis fram í bæjunum. Skólabíll tvisvar á dag Hinrik Þór segir í samtali við Vísi að Kambaskriður séu þekkt grjóthrunssvæði en það sé mjög misjafnt eftir tíðarfari. Í rigningum eða frosti og þýðu losni um grjót. Stundum þurfi að fara þrisvar á dag í grjóthreinsun. Verktaki á Breiðdalsvík sé alltaf klár þegar kallið komi. Vegagerðin sinni eftirliti á tímabilum þar sem hættan er meiri. Í morgun hafi tilviljun þó ráðið því að starfsmaður Vegagerðarinnar hafi ekið fram á grjótið á leið til vinnu. Allur gangur sé á því hvernig grjót falli á veginn. „Þetta er voðalega misjafnt. Stundum koma fullt af smásteinum, minni en handbolti. Núna voru þetta allavega tvær þvottavélar og nokkrir örbylgjuofnar á stangli,“ segir Hinrik Þór. Þeir noti heimilistæki til að fólk átti sig betur á stærð og þyngd grjótsins. „Við höfum séð steina sem hafa lent bæði í vegrásinni og skoppað yfir veginn en líka lent á veginum og rúllað út af. Steinar sem eru jafnvel á stærð við Yaris-bíl. Einn skemmdi vegrið fyrir nokkrum árum, fór yfir það og stoppaði á brúninni. Þetta eru alls konar stærðir sem eru að koma þarna niður,“ segir Hinrik og hugsar til barnanna á svæðinu. „Það er ekki gott að hugsa til þess að þarna fer skólabíll tvisvar á dag.“
Fjarðabyggð Vegagerð Umferðaröryggi Grunnskólar Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira