Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Smári Jökull Jónsson skrifar 12. september 2026 12:57 Anna Hildur Guðmundsdóttir er formaður SÁÁ. Vantrausti var lýst á hana sem og framkvæmdstjórn samtakanna í gær. Vísir/Anton Brink Formaður SÁÁ segir að vantrautsyfirlýsing starfsmanna sé litin alvarlegum augum. Hún vill ekki tjá sig um hvort afsögn komi til greina og segist trúa að hægt sé að byggja upp traust þó staðan sé erfið.
Sextíu og þrír starfsmenn SÁÁ skrifuðu undir yfirlýsingu í gær þar sem vantrausti er lýst á formann samtakanna, Önnu Hildi Guðmundsdóttur, og framkvæmdastjórn þeirra. Á meðal þeirra sem skrifa undir eru læknar, stjórnendur, hjúkrunarfræðingar og sálfræðingar auk áfengis- og vímuefnaráðgjafa og í samtali við Vísi í gær sagði Helga Katrín Jónsdóttir, læknir hjá SÁÁ, að mjög alvarleg staða sé uppi og starfsfólki hafi fundist það tilneytt að senda yfirlýsinguna frá sér. Kemur hún í kjölfar afsagnar framkvæmdastjóra lækninga og fagstjóra á Vík, sem sökuðu stjórn SÁÁ um óeðlileg afskipti af meðferðarstarfi samtakanna. Einnig var gerður starfslokasamningur við forstjóra samtakanna. „Rödd þeirra skiptir mjög miklu máli“ Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ segir framkvæmdastjórn hafa tekið á móti vantraustsyfirlýsingunni og líti hana alvarlegum augum. „Það er ljóst að grípa þarf til aðgerða til þess að byggja upp traust og aðalstjórn hefur verið kölluð saman til aukafundar núna á mánudaginn til þess að fjalla um hana [vantraustsyfirlýsinguna] og þær kröfur sem eru settar fram í henni,“ sagði Anna Hildur í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Við teljum bara mikilvægt að eiga þetta milliliðalausa samtal á uppbyggilegan hátt á mánudaginn.“ Skilur þú áhyggjur starfsfólks vegna stöðunnar sem er uppi? „Ég skil þetta og starfsfólk SÁÁ sinnir daglega krefjandi og mikilvægri þjónustu þannig að þetta er mjög alvarlegt. Rödd þeirra skiptir mjög miklu máli og því er mikilvægt að kalla aðalstjórnina saman svo að við fáum tækifæri til þess að ræða þetta og fara yfir. Við tökum þetta bara mjög alvarlega.“ Hefur haft áhrif á starfsemina Anna Hildur vill ekki segja hvort afsögn komi til greina, byrjað verði á fundinum sem fyrirhugaður er á mánudag. Deilurnar hafa haft áhrif á starfsemi SÁÁ. „Þetta hefur haft einhver áhrif en það sem er mikilvægast er að starfsfólk fái frið og tækifæri til að vinna vinnuna sína og þess vegna höfum við ekki viljað ræða þetta á opinberum verkefni. Þessi starfsemi er mjög viðkvæm og það þarf að standa vörð um hana.“ Ertu bjartsýn á að það sé hægt að byggja upp traust miðað við hvernig staðan er núna? „Já, ég er mjög bjartsýn á það. Staðan er erfið, ég veit það og viðurkenni það. En ég trúi á lausn.“
SÁÁ Fíkn Heilbrigðismál Félagasamtök Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira