Mexíkóskur verðlaunablaðamaður skotinn til bana Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. maí 2017 08:00 Frá vettvangi morðsins í gær. vísir/epa
Mexíkóskur blaðamaður, Javier Valdez, sem unnið hefur til fjölda verðlauna fyrir skrif sín um eiturlyfjabaróna landsins, var skotinn til bana í gær í Sinaloa-héraði í norðvesturhluta Mexíkó. Ekki er vitað hverjir voru að verki byssumenn létu kúlu rigna yfir bíl hans í borginni í Culiacan en Valdez starfaði þar. Hann var fimmtugur að aldri og er fimmti blaðamaðurinn sem er myrtur í Mexíkó það sem af er þessu ári. „Að vera blaðamaður er eins og að vera á svörtum lista. Það skiptir ekki máli hvað þú ert í mörgum skotheldum vestum eða hversu marga lífverði þú ert með. Glæpagengin ákveða einfaldlega daginn sem þau ætla að drepa þig,“ sagði Valdez eitt sinn. Ferill hans í blaðamennsku spannaði hátt í þrjá áratugi. Hann skrifaði mikið um Sinaloa-eiturlyfjahringinn sem talið er að smygli fjórðungi allra eiturlyfja sem berast frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Stofnandi þeirrar glæpaklíku er Joaquin Guzman, betur þekktur sem „El Chapo“ eða „sá stutti“. Hann var handsamaður árið 2014 og bíður nú dóms í Bandaríkjunum.
Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Fleiri fréttir „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Sjá meira