„Skiptir ekki höfuðmáli hvort þeir þurfi að keyra í nokkrar mínútur í viðbót á Vífilstaði“
Lilja var spurð í Kosningaspjalli Vísis hvernig nýr spítali samræmdist áherslum Framsóknarflokksins í flugvallarmálum en hann hefur verið ötull talsmaður núverandi legu Reykjavíkurflugvallar á undanförnum árum.
Til að mynda hefur hann boðið sig fram undir merkjum Flugvallarvina í síðastliðnum borgarstjórarkosningum og þá hefur þingmaður flokksins talað fyrir lagasetningu sem myndi festa núverandi staðsetningu flugvallarins í Vatnsmýri.
Einhver helstu rökin fyrir núverandi legu flugvallarins í Vatnsmýri hafa verið mikilvægi hans fyrir sjúkraflug í landinu vegna nálægðarinnar við Landspítalann við Hringbraut. Lilja telur að flutningur spítalans muni þó ekki hafa afgerandi áhrif á sjúkraflugið. Hún segir í því samhengi að mikilvægt sé að átta sig á því að byggingin sem fyrirhuguð sé við Hringbraut henti ekki núverandi þyrluflota.
Flugvöllurinn ekki á förum þó nýr spítali rísi
Þá sé líðan fólks sem alla jafna er flutt með sjúkraflugi orðin stöðug og því telji Framsóknarflokkurinn ekki skipta höfuðmáli hvort þeir þurfi „að keyra í nokkrar mínútur í viðbót á Vífilstaði eða á annan stað,“ eins og Lilja orðar það.
Það þýðir þó ekki að flugvöllurinn megi hverfa úr Vatnsmýri og spítalinn verði áfram á Hringbraut að mati Lilju.
„Flugvöllurinn fer ekki neitt nema að það sé búið að finna nýjan stað fyrir innanlandsflugið. Þetta þarf allt að fara saman,“ segir Lilja. Hún sé því ekki á sama á máli og margir sem vilja að spítalinn verði áfram á sama stað en að flugvöllurinn fari. Áður þurfi að liggja fyrir raunhæfar tillögur um framtíð innanlandsflugsins.
Viðtalið við Lilju má sjá í spilaranum hér að ofan. Þar eru hugmyndir Framsóknar um nýjan spítala ræddar frekar sem og áherslur flokksins í öðrum málaflokkum; svo sem skatta- og innflytjendamálum.
Tengdar fréttir
Viðreisn hvorki hækja Sjálfstæðisflokksins né stóra Samfylkingin
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir flokkinn vera reiðubúinn til að vinna með öllum flokkum svo lengi sem þeir mæti Viðreisn á miðjunni.
Kosningaspjall Vísis: Sameining komið til tals en aldrei til greina
Óttarr Proppé segir jafnaðarmennsku ekki vera keppikefli hjá Bjartri Framtíð eins og hjá Samfylkingunni.
Kosningaspjall Vísis: Telur það ekki mistök að hafa farið í olíuleit á sínum tíma
Rósa Björk Brynjólfsdóttir oddviti Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi telur að það hafi ekki verið mistök hjá Steingrími J. Sigfússyni þáverandi atvinnuvegaráðherra og flokksbróður sínum að úthluta fyrstu sérleyfunum til olíuleitar á Drekasvæðinu þó að flokkurinn sé í dag andsnúinn olíuleit. Þetta kom fram í Kosningaspjalli Vísis í dag.
Kosningaspjall Vísis: „Ég er kommúnisti en þetta er ekki kommúnistaflokkur“
Vésteinn Valgarðsson, oddviti Alþýðufylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir hluta af markmiðum flokksins að koma málstað hans til fólksins.
Kominn tími á rödd sem veit um hvað hún er að tala
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir að nauðsynlegt sé að fá fólk á þingi sem þekkir á eigin skinni hvernig það sé að vera í lægsta þrepi samfélagsins.
Kosningaspjall Vísis: Menntakerfið hleypi börnunum að borðinu
Húmanistar vilja að menntakerfið hætti að framleiða starfsmenn og auðveldi þeim heldur að skapa sér framtíð á eigin forsendum.
Fullyrðir að Íslenska þjóðfylkingin verði stærsti flokkur landsins ef aðrir flokkar hlusta ekki
"Við erum enginn rasistaflokkur.“
Kosningaspjall Vísis: „Við erum með bestu stefnu í heimi“
Oddný Harðardóttir formaður Samfylkingar segist ekki trúa því að stefnumál flokksins séu ástæða lítils fylgis sem hann mælist nú með í skoðanakönnunum því stefna flokksins sé sú besta í heimi. Hún hefur þó ekki skýringar á hinu litlu fylgi en þetta kom fram í viðtali við Oddnýju í Kosningaspjalli Vísis í dag.
Kosningaspjall Vísis: „Verðtryggingin er ekkert nema svikamylla“
Dögun vill afnema verðtryggingu og setja þak á vexti. Ragnar Þór Ingólfsson oddviti flokksins í Suðvesturkjördæmi segir þetta algjörlega raunhæft en hann var gestur í Kosningaspjalli Vísis í dag.