Margrét Lára fer í aðgerð á hinu lærinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2016 09:00 Margrét Lára Viðarsdóttir leiðir íslenska liðið fyrir leik á móti Dönum á æfingamótinu í Kína. Mynd/KSÍ/Hilmar Þór Guðmundsson Norðfjörð
Margrét Lára Viðarsdóttir, fyrirliði Vals og íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, fer í aðgerð á næstu dögum en hún er nýkomin heim frá Kína þar sem hún tók þátt í æfingamóti með íslenska landsliðinu. Margrét Lára hefur ekki getað beitt sér að fullu vegna lærameiðsla og spilaði sem dæmi aðeins í 70 mínútur af 270 í leikjunum þremur út í Kína. Margrét Lára hefur nú ákveðið að leggjast undir hnífinn og fara í aðgerð á vinstra læri en hún fór í sambærilega en talsvert stærri aðgerð á hægra lærinu haustið 2012. Morgunblaðið segir frá þessu. Margrét Lára hefur verið að fresta aðgerðinni á vinstra lærinu síðustu ár. „Ég náði alltaf að hvíla mig inn á milli, eftir fyrri aðgerða og svo þegar ég fór í barneignir,“ sagði Margrét Lára við Morgunblaðið. Margrét Lára þurfti nokkra mánuði til að jafna sig eftir fyrri aðgerðina en þar sem að þessi aðgerð er mun minni vonast landsliðsfyrirliðinn til þess að geta farið að spila fótbolta strax í janúar eða um 4 til 6 vikum eftir aðgerðina. Margrét Lára hefur sett stefnuna á Evrópumótið í Hollandi næsta sumar en undirbúningur íslenska liðsins hefst strax í ársbyrjun. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði 14 mörk í 17 leikjum með Val í Pepsi-deildinni síðasta sumar sem var hennar fyrsta tímabil á Íslandi frá 2008. Hún gat spilað alla leiki tímabilsins nema leikinn á móti Breiðabliki í lokaumferðinni. Margrét Lára spilaði 10 af 13 landsleikjum ársins og skoraði í þeim 2 mörk. Hún var fyrirliði í 7 landsleikjum á árinu eða öllum leikjunum sem hún var í byrjunarliðinu.
Íslenski boltinn Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira