Finnur Ólafsson að semja við Þrótt Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. mars 2016 12:54 Finnur Ólafsson í leik með Víkingi síðasta sumar. vísir/andri marinó
Fótboltamaðurinn Finnur Ólafsson skrifar nú klukkan 13.00 undir eins árs samning við nýliða Þróttar í Pepsi-deild karla. Finnur kemur til Þróttar frá Víkingi, en hann hefur áður spilað með uppeldisfélagi sínu HK, ÍBV og Fylki í efstu deild. „Það var of mikið að gerast hjá Víkingum sem mér líkaði ekki. Maður getur vælt og vælt og sagt að allt sé öllum öðrum að kenna en maður verður líka að líta í eigin barm,“ segir Finnur í samtali við Vísi um ákvörðunina að skipta um félag. „Ég skil í góðu við Víkingana. Þetta er algjör topp klúbbur og ég óska Víkingum alls hins besta. Þarna eru yndislegir strákar en þetta samstarf bara gekk ekki.“ Finnur á að baki 125 leiki í efstu deild. Hann spilaði 15 leiki fyrir Víking í Pepsi-deildinni í fyrra, þar af var hann níu sinnum í byrjunarliði. Hann kveðst spenntur fyrir nýju ævintýri með nýliðum Þróttar sem spila í fyrsta sinn síðan 2009 á meðal þeirra bestu í sumar. „Ég er alveg ótrúlega spenntur og líka bara spenntur fyrir því að fara í rautt og hvítt aftur,“ segir HK-ingurinn. Þróttarar hafa ekki verið að gera neinar rósir á undirbúningstímabilinu og töpuðu síðast 2-0 fyrir Fjölni í Lengjubikarnum í gærkvöldi. Finnur hefur engar áhyggjur af því. „Þegar ég var ÍBV tókum við ekki stig eitt undirbúningstímabilið af Pepsi-deildarliðum en vorum svo í titilbaráttu í lokaumferð deildarinnar. Ég minnist bara þess tíma og veit alveg að við í Þrótti getum gert eitthvað flott í sumar,“ segir Finnur Ólafsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Færeyingar taka upp VAR Fótbolti Stjörnur Kolstad þurfa að taka á sig launalækkun Handbolti Dregið í enska bikarnum: Mávarnir fljúga til Manchester Enski boltinn Sandra María með þrennu og er markahæst í Þýskalandi Fótbolti Úlfarnir lítil fyrirstaða fyrir Rauðu djöflana Enski boltinn Barton dæmdur í hálfs árs fangelsi Enski boltinn Heimir Hallgrímsson og Eyjólfur Sverrisson spá báðir vítakeppni Íslenski boltinn Átta liða úrslitin á HM klár Handbolti Fleiri fréttir Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina KSÍ skiptir um mótakerfi og smíðar nýjan vef Damir Muminovic til Grindavíkur Vestramenn sækja son sinn suður Einn fljótasti leikmaður Bestu deildarinnar orðinn Þróttari Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Sjá meira