Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 25. maí 2026 22:13 Guðni Eiríksson gat gengið sáttur frá borði í kvöld. vísir/Diego Guðni Eiríksson þjálfari FH var gríðarlega ánægður með sitt lið eftir 3-2 sigur gegn Breiðabliki í Bestu deild kvenna á Kópavogsvelli í kvöld.
FH lenti tvisvar undir gegn toppliði Breiðabliks en svaraði í bæði skiptin og tryggði sér að lokum sterkan sigur með marki úr vítaspyrnu í síðari hálfleik. „Ég er bara gríðarlega ánægður. Gríðarlega ánægður með vinnuframlag FH-liðsins,“ sagði Guðni eftir leik. „Ánægður með bara fighting spirit-ið. Við gáfumst aldrei upp og tvisvar sinnum lentum við undir. Svörum í bæði skiptin og skorum svo þriðja markið. Hefðum getað bætt við fjórða þarna í tvígang þar á eftir. En bara liðsheildarbragur á FH-liðinu. Flottur sigur.“ Sigurmark FH kom úr vítaspyrnu eftir að Ingibjörg Magnúsdóttir sótti brot inni í teig Breiðabliks. Guðni var ekki í vafa um dóminn. „Ég sé hana bara þar sem ég stend og fyrir mína parta var þetta klárt víti,“ sagði Guðni. Hann sagði ekkert í leik Breiðabliks hafa komið sér sérstaklega á óvart en hrósaði bæði leiknum og umgjörðinni á Kópavogsvelli. „Nei, Breiðabliksliðið hefur bara haldið sínum gangi áfram, ekkert sem kom mér á óvart í því. Þetta var í raun og veru bara mjög skemmtilegur leikur held ég að horfa á.“ „Frábær umgjörð, fullt af fólki að horfa á og hart tekist á. Stöðug barátta hér og þar,“ sagði Guðni. Að mati Guðna var FH-liðið lengi vel með góð tök á leiknum þrátt fyrir að hafa lent undir. „Mér fannst svona á löngum köflum FH-liðið vera ofan á. Þegar við fengum á okkur fyrsta markið þá tók við tíu mínútna kafli þar sem við vorum að ströggla, þurftum að þjást á vellinum, klúðra sendingum og þetta dæmigerða þegar þú færð á þig mark.“ Eftir þann kafla fannst honum FH ná vopnum sínum á ný. „Eftir þessar tíu mínútur náðum við að taka leikinn aftur í okkar hendur,“ sagði Guðni. „Fyrir mína parta, ég er náttúrulega ekki hlutlaus, en sanngjarn sigur.“
FH Besta deild kvenna Mest lesið Vann Steraleikana en hefði endað síðastur á Ólympíuleikunum Sport Hafþór reyndi við þyngd sem hefði fært honum tugi milljóna Sport Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi Íslenski boltinn Allegri og allir stjórnendur AC Milan reknir Fótbolti Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn HM í hættu? Messi meiddist í síðasta leik sínum fyrir HM Fótbolti Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Formúla 1 Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham? Fótbolti Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Enski boltinn Tímamót á HM: Enginn leikmaður frá Real Madrid í liði Spánar Fótbolti Fleiri fréttir Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik „Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Uppgjörið: Stjarnan - Fram 0-1 | Sigurmark Róberts færir Fram nær toppnum Víkingur R. - FH 5-0 | Markaveisla í Víkinni Keflavík - Þór 1-0 | Baráttusigur í nýliðaslagnum KA - Valur 0-1 | Valsmenn stöðvuðu sigurgöngu KA Allur ágóði tónleika Loga til Ingvars Sjáðu glæsimörk Gíslanna og endurkomu Eyjamanna „Allir tilbúnir að hrauna yfir þjálfarann“ „Leið aldrei eins og við værum að sigla þessu heim“ Fékk að vita af skiptunum klukkan tvö í gær Úlfur Ágúst sleit liðband Sjá meira