Sýrlensk flóttabörn starfandi í verksmiðjum H&M og Next Sæunn Gísladóttir skrifar 2. febrúar 2016 16:36 Sýrlensk börn hjúfra sig að móður sinni eftir flótta til Istanbúl í Tyrklandi. Vísir/AFP
Tískufyrirtækin H&M og Next hafa viðurkennt að sýrlensk flóttabörn hafi verið að vinna í verksmiðjum þeirra í Tyrklandi. Talið að er að börnin gætu verið að vinna fyrir fjölda annarra tískufyrirtækja. Independent greinir frá þessu. Í Tyrklandi er fjöldi fatafyrirtækja með framleiðslu, meðal annars Topshop, Burberry, Marks & Spencer og Asos. Í Tyrklandi býr stærsti hópur sýrlenskra flóttamanna, eða um 2,5 milljónir manna. Hundruði þúsunda Sýrlendinga vinnur fyrir lágmarkslaun sem nema um 60 þúsund krónum á mánuði í Tyrklandi. Mörg börn eru einnig við störf þrátt fyrir lög sem kveða á um bann við það. Breski Rauði Krossinn spurðist fyrir meðal 28 tískufyrirtækja í síðasta mánuði um tyrkneskar verksmiðjur þeirra og hvað fyrirtækin væru að gera til að koma í veg fyrir misnotkun á sýrlensku vinnuafli. H&M og Next voru einu fyrirtækin sem viðurkenndu að þau hefðu fundið börn við störf í verksmiðjum sínum á árinu 2015. Fyrirtækin segjast vera að vinna gegn þessu og beiti sér fyrir því að börnin komist aftur í skóla.
Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Icelandair hefur flug til Qaqortoq Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira