Víkingar náðu bara jafntefli á móti ÍR í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2016 21:04 Arnþór Ingi Kristinsson fékk rautt. Vísir/Andri Marinó
Pepsi-deildarlið Víkinga og 2. deildarlið ÍR gerðu 3-3 jafntefli í Egilshöllinni í kvöld í fyrsta leik Reykjavíkurmóts karla í fótbolta í ár. Víkingar komust í 2-0 og 3-1 í fyrri hálfleik en fengu á sig tvö mörk í seinni hálfleiknum og enduðu manni færri síðustu tólf mínútur leiksins. Stefán Þór Pálsson skoraði tvö mörk fyrir Víkinga og átti þátt í öllum þremur mörkum liðsins því hann fiskaði einnig vítið sem Ívar Örn Jónsson skoraði úr. Jóhann Arnar Sigurþórsson, Andri Jónasson og varamaðurinn Arnór Björnsson skoruðu mörk ÍR í leiknum. Stefán Þór skoraði fyrra markið sitt á 8. mínútu eftir að hafa fylgt eftir sláarskoti Viktors Bjarka Arnarssonar og Ívar Örn Jónsson skoraði síðan annað markið úr víti aðeins fjórum mínútum síðar. Jóhann Arnar Sigurþórsson minnkaði muninn fyrir ÍR á 22. mínútu en Stefán Þór kom Víkingum aftur tveimur mörkum yfir á 33. mínútu eftir sendingu frá Iain James Williamson. Andri Jónasson minnkaði muninn í 3-2 á 50. mínútu. Arnór Björnsson skoraði síðan jöfnunarmarkið á 62. mínútu leiksins eftir að komist einn í gegn á móti Róberti Erni Óskarssyni, markverði Víkinga. Víkingar enduðu tíu á móti ellefu eftir að Arnþór Ingi Kristinsson fékk tvö rauð spjöld með fimmtán mínútna millibili en seinna gula kom á 78. mínútu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik Körfubolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Handbolti Oliver keyptur til KA Íslenski boltinn Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit Fótbolti Fleiri fréttir „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Hættur að þjálfa Messi fjórum mánuðum eftir titilinn Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkar nældu í þrjú stig Thelma Karen í byrjunarliðinu „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Sjá meira