Yfir þrjátíu milljónir vilja Mbappé í burtu Sindri Sverrisson skrifar 7. maí 2026 13:15 Það væru líklega flest ef ekki öll lið til í að hafa Kylian Mbappé í sínum röðum. Getty/Angel Perez Meca Megn óánægja ríkir hjá Real Madrid með þá staðreynd að annað árið í röð virðist liðið hafa misst af bæði Spánar- og Evrópumeistaratitlinum. Skuldinni er skellt á stærstu stjörnu liðsins, Kylian Mbappé.
Þessi 27 ára Frakki hefur raðað inn mörkum fyrir Real á þeim tveimur árum sem hann hefur spilað með liðinu, skorað 85 mörk í 100 leikjum, en það dugar skammt til að gleðja stuðningsmenn liðs sem á 36 Spánarmeistaratitla og 15 Evrópumeistaratitla í sínu safni. 30 million fans have now signed a petition calling for Kylian Mbappe to leave Real Madrid 😳✍️ pic.twitter.com/9wDUqVdi9q— Football on TNT Sports (@footballontnt) May 7, 2026 Mbappé hefur verið að glíma við meiðsli aftan í læri síðustu daga og þykir ólíklegt að hann nái El Clásico leiknum við Barcelona á sunnudaginn. Real þarf að vinna þann leik því annars tryggir Barcelona sér aftur meistaratitilinn, í fyrsta sinn með því að vinna erkifjendurna. Vegna meiðslanna hefur Mbappé ekki getað æft og hann fékk frí í síðustu viku sem hann nýtti til að ferðast til Sardiníu. Frjálst að gera það sem hann vill í frítímanum Óhætt er að segja að það hafi fallið illa í kramið hjá stuðningsmönnum Real að sjá Mbappé hafa það náðugt á snekkju, um svipað leyti og Real var að mæta Espanyol. „Mbappé má gera það sem hann vill í sínum frítíma, rétt eins og aðrir leikmenn,“ sagði Alvaro Arbeloa, þjálfari Real. En eftir að myndirnar af Mbappé á snekkjunni birtust var hrundið af stað undirskriftasöfnun og þess krafist að Mbappé yrði látinn fara frá Real. Markmiðið var að safna 200.000 undirskriftum en þær voru orðnar 12 milljónir á einum sólarhring og þegar þetta er skrifað hafa yfir 30 milljón manns skrifað undir. Auðvitað er ekki hægt að segja til um hvort allt þetta fólk sé í raun stuðningsfólk Real Madrid en það er þó alveg ljóst að pressan er orðin gífurleg á Mbappé og skýr krafa um titla á næstu leiktíð.
Spænski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira