Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - SJK 1-0 | FH fer til Aserbaídsjan | Sjáðu markið Guðmundur Marinó Ingvarsson á Kaplakrikavelli skrifar 9. júlí 2015 13:10
FH er í komið í aðra umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta eftir 1-0 sigur á finnska liðinu SJK á heimavelli í kvöld. FH vann einvígi liðanna samanlagt 2-0. Eftir 1-0 sigur í fyrri leiknum virtist FH-liðið koma full varkárt inn í leikinn og fékk SJK dauðafæri strax á 3. mínútu en Róbrert Örn Óskarsson kom liðinu til bjargar einn gegn helsta markaskorara SJK. Þetta færi virtist slá FH út af laginu og komst liðið lengi vel ekki fram yfir miðju. Þegar líða tók á leikinn jöfnuðu heimamenn sig þó og færðist meira jafnvægi í leikinn. Þrátt fyrir nokkra yfirburði SJK í upphafi skapaði liðið sér ekki teljandi færi. Vörn FH réð vel við allt það sem finnska liðið reyndi en þó gat enginn Hafnfirðingur setið rólegur. Þórarinn Ingi Valdimarsson fékk besta færi FH í fyrri hálfleiks og fagna hann manna hæst þegar Kristján Flóki Finnbogason skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. FH komið áfram og allir geta gleymt færinu hans. Fyrir utan nokkrar hornspyrnur náði SJK ekki að gera alvarlega atlögu að marki FH í seinni hálfleiks. Liðið færði sig framar er leið á leikinn og freistaði þess að jafna einvígið og það nýtti FH sér vel. Skyndisóknir FH voru hættulegar og úr einni slíkri tryggði Kristján Flóki sigurinn eftir góða sendingu Atla Guðnasonar en finnsku varnarmennirnir áttu í miklum andræðum með frábæran Atla í leiknum. FH fékk mun hættulegri færi í seinni hálfleik og má segja að liðið sé verðskuldað komið áfram þó finnska liðið hafi verið meira með boltann heilt yfir í leiknum. FH er komið í aðra umferð forkeppni Evrópudeildarinnar og mætir þar Inter Baku frá Aserbaídsjan. Heimir: Fórum sanngjarnt áfram„Við byrjuðum þetta ekki nógu vel, þeir byrja þetta sterkt en eftir 10 til 15 mínútur náðum við að jafna okkur,“ sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir sigurinn í kvöld. „Mér fannst þetta sanngjarn sigur og skipulagið hjá okkur var gott. Við erum búnir að spila við þetta lið í 180 mínútur og þeir náðu ekki að skora hjá okkur. Við fórum sanngjarnt áfram.“ Finnska liðið fékk sitt lang besta færi strax á 3. mínútu leiksins og það sló FH út af laginu. Því var Heimir sammála. „Þetta var bölvaður grís. Hann var að hreinsa og sóknarmaðurinn slapp í gegn en Robbi varði frábærlega. „Við náðum að loka vel á það sem þeir voru að gera og um leið og við höfðum þor til halda boltanum innan liðsins þá sköpuðum við okkur færi,“ sagði Heimir sem sagði mark FH hafa legið í loftinu undir lok leiksins. „Eðlilega fóru þeir framar með liðið. Þeir fóru í þriggja manna vörn og hentu mönnum fram og við náðum að refsa þeim. „Það er frábært að komast áfram og nú bíður okkar leikur á móti Fylki á sunnudaginn. Við þurfum að einbeita okkur að því og Aserbaídsjan, við höfum áhyggjur af því seinna,“ sagði Heimir. Davíð Þór: Okkur líður ágætlega í svona leikjum„Þetta var hrikalega sætt, við þurfum að hafa ekkert smá fyrir þessu,“ sagði þreyttur en glaður fyrirliði FH, Davíð Þór Viðarsson, eftir sigurinn á SJK í kvöld. „Við vorum á hælunum í byrjun og verum heppnir að fá ekki á okkur mark eftir nokkrar mínútur. Svo unnum við okkur inn í leikinn og þeir sköpuðu sér ekki mikið að færum þrátt fyrir að vera meira með boltann. Hjá okkur vantaði að síðasta sendingin væri í lagi,“ sagði Davíð. Davíð sagði FH mögulega hafa komið kærulaust inn í leikinn verandi með 1-0 forystu eftir fyrri leikinn. „Við eigum í basli í byrjun. Við erum ekki nógu nálægt mönnunum okkar og svo þegar við fáum boltann þá missum við hann um leið. Ég veit ekki hvort það hafi verið stress eða hvað. „Það vill oft verða svo í svona einvígi að þegar þú kemur inn í leik með forystu að maður getur verið kærulaus og bíður eftir því hvað hitt liðið ætli að gera. Það boðar aldrei gott en við sluppum með það núna,“ sagði Davíð sem skaut léttum skotum á Þórarinn Inga fyrir að hafa ekki nýtt færið í fyrri hálfleik. „Það var erfiðara fyrir Tóta að hitta ekki markið en það er svona. „Í seinni hálfleik spiluðum við þetta mjög skynsamlega. Þeir setja smá pressu á okkur á tímabili en eru ekki að fá nein almennileg færi. Við lögðum upp með að halda hreinu, við vissum að það myndi duga. „Það sást aðeins í lokin að Finnarnir voru farnir full framarlega þegar tíu mínútur voru eftir. Það var allt opið hjá þeim og við hefðum kannski átt að nýta það betur. Okkur líður ágætlega í svona leikjum og það var gott að halda hreinu og gaman fyrir Flóka að koma inn og ná einu í lokin. Davíð Þór hefur áður leikið í Aserbaídsjan með FH og veit hverju hann á von á þar. „Þetta verður í annað skipti sem ég kem til Aserbaídsjan og í síðasta skiptið sem ég fór þangað sendi konan mín mig með skinku og álegg og svona. Maturinn var ekkert sérstakur en verður vonandi betri núna. „Þetta verður virklega erfiður leikur. Þeir mættu Elfsborg í fyrra, í umferðinni á undan því þegar við mættum Elfsborg, og voru óheppnir að komast ekki áfram þar og voru í sjálfu sér betra liðið. „Við vitum að það verður við ramman reip að draga en við gerum okkar besta,“ sagði Davíð.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti „Gangandi martröð“ Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Enski boltinn Fleiri fréttir Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Sjá meira