Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Valur Páll Eiríksson skrifar 3. október 2026 14:46 Aron Einar spilar sinn fyrsta leik í þessum landsleikjaglugga í dag. Getty Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, gerir heilar sex breytingar á byrjunarliði Íslands eftir 3-0 sigur á Lúxemborg í miðri viku. Öll varnarlínan breytist frá síðasta leik.
Stefán Teitur Þórðarson fór meiddur út af í Lúxemborg og hann dettur út úr liðinu rétt eins og hinir þrír úr varnarlínunni; Daníel Leó Grétarsson, Guðlaugur Victor Pálsson og Logi Tómasson eru allir á bekknum. Mikael Anderson tekur sæti Guðlaugs í bakverðinum, Hörður Björgvin Magnússon, sem leysti Stefán Teit af í vikunni, og Aron Einar Gunnarsson manna miðvörðinn og Mikael Egill Ellertsson fer aftur í vinstri bakvörðinn. Mikael byrjaði leikinn við Eistland í vinstri bakverði en spilaði svo hægri kant gegn Lúxemborg í vikunni. Hann er því að byrja þriðja leikinn í röð. Ísak Bergmann Jóhannesson er einnig að byrja þriðja leikinn í röð á miðju Íslands en hann er sá eini sem heldur sæti sínu á miðjunni frá því á þriðjudaginn. Andri Fannar Baldursson tekur sæti Gylfa Þórs Sigurðssonar á miðjunni með honum. Jón Dagur Þorsteinsson kemur þá aftur inn í liðið, í þetta sinn á vinstri kantinn, eftir að hafa byrjað hægra megin fyrir viku síðan og Arnór Sigurðsson tekur að sér hægri kantinn. Hákon Arnar Haraldsson var á kantinum gegn Lúxemborg en hann er frammi í dag ásamt fyrirliðanum Orra Steini Óskarssyni. Andri Lucas Guðjohnsen sest á bekkinn. Byrjunarlið Íslands: Markvörður: Hákon Rafn Valdimarsson Hægri bakvörður: Mikael Anderson Miðvörður: Aron Einar Gunnarsson Miðvörður: Hörður Björgvin Magnússon Vinstri bakvörður: Mikael Egill Ellertsson Hægri kantmaður: Arnór Sigurðsson Miðjumaður: Ísak Bergmann Jóhannesson Miðjumaður: Andri Fannar Baldursson Vinstri kantmaður: Jón Dagur Þorsteinsson Sóknarmaður: Orri Steinn Óskarsson (f) Sóknarmaður: Hákon Arnar Haraldsson Til skerpingar eru breytingarnar þessar: Inn: Mikael Anderson, Aron Einar Gunnarsson, Hörður Björgvin Magnússon, Andri Fannar Baldursson, Arnór Sigurðsson, Jón Dagur Þorsteinsson. Út: Guðlaugur Victor Pálsson, Stefán Teitur Þórðarson, Daníel Leó Grétarsson, Logi Tómasson, Gylfi Þór Sigurðsson, Andri Lucas Guðjohnsen. Bæði Mikael Egill Ellertsson og Hákon Arnar Haraldsson eru áfram í liðinu en breyta um stöðu. Hákon Rafn Valdimarsson, Ísak Bergmann Jóhannesson og Orri Steinn Óskarsson spila óbreytta stöðu í dag frá leiknum í Lúxemborg. Leikur Íslands og Búlgaríu hefst klukkan 16:00 og er í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn Sport. Bein útsending hefst 40 mínútum fyrir leik, klukkan 15:20.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Sjá meira