„Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Sindri Sverrisson skrifar 3. október 2026 15:50 Gylfi Þór Sigurðsson kom inná sem varamaður í síðasta heimaleik, gegn Eistlandi, og byrjar á varamannabekknum á Laugardalsvelli í dag. vísir/Anton „Áhættusamt. Óhætt að segja það,“ sagði Kári Árnason í umræðum á Sýn Sport um það byrjunarlið sem Arnar Gunnlaugsson hefur valið fyrir leikinn við Búlgaríu í Þjóðadeildinni í dag. Kári botnar lítið í þeirri ákvörðun að taka Gylfa Þór Sigurðsson út úr byrjunarliðinu. „
Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur. Hann vill spila alla leiki og hann hugsar það vel um sig að það er ekkert vandamál,“ sagði Kári um Gylfa. Svo virðist sem Gylfa sé frekar ætlað að vera í byrjunarliðinu í útileiknum gegn Eistlandi á þriðjudaginn þegar þessari fjögurra leikja landsleikjatörn lýkur. „Ég gæti skilið þetta hefði hann spilað tvo leiki og myndi svo hvíla úti á móti Eistum á þriðjudaginn. En mér finnst skrýtið að „hæpa“ Eista sem erfitt lið á útivelli. Við eigum bara að ná þessum tveimur leikjum í röð og getum þá gleymt þessum fyrri leik við Eista og komið í þann seinni með betra plan,“ sagði Kári en umræðuna má sjá hér að neðan. Sex breytingar eru á byrjunarliðinu frá 3-0 sigrinum gegn Lúxemborg á þriðjudaginn og meðal annars kemur Andri Fannar Baldursson á miðjuna í stað Gylfa og fær stóra áskorun. Þá eru fjórir nýir menn í vörninni. „Þetta gæti heppnast en hann er að sýna að hann treystir hópnum og það er jákvætt. Hann treystir mönnum fyrir risahlutverki í liðinu,“ sagði Kári. „Andri Fannar er að koma upp úr lægð, kom fyrst inn í landsliðið kornungur og var helvíti spennandi en svo fjaraði einhvern veginn undan hans gengi. En svo virðist hann standa sig vel í Tyrklandi núna og er kominn inn á miðsvæðið. Risapróf fyrir hann. Svo erum við með alveg nýja vörn. Höfum ekki séð þessa útfærslu á vörninni áður. Búlgararnir eru ekki með frábært lið en það er mjög áhættusamt að gera þetta. Vonandi komumst við upp með þetta,“ sagði Kári. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari útskýrði breytingarnar á byrjunarliðinu í viðtali skömmu fyrir leik og má sjá það hér að neðan.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Tengdar fréttir Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, gerir heilar sex breytingar á byrjunarliði Íslands eftir 3-0 sigur á Lúxemborg í miðri viku. Öll varnarlínan breytist frá síðasta leik. 3. október 2026 14:46 Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Sjá meira
Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, gerir heilar sex breytingar á byrjunarliði Íslands eftir 3-0 sigur á Lúxemborg í miðri viku. Öll varnarlínan breytist frá síðasta leik. 3. október 2026 14:46