Íslenski boltinn

Sigurganga Þróttar á enda

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gregg Ryder tapaði fyrsta deildarleiknum í sumar.
Gregg Ryder tapaði fyrsta deildarleiknum í sumar. vísir/stefán
Þróttur tapaði sínum fyrsta leik í 1. deild karla í fótbolta í kvöld, en liðið var fyrir leikinn búið að vinna fyrstu sex leiki sína í deildinni.

Fram var liðið sem stöðvaði sigurgöngu Þróttara, en Gunnar Helgi Steindórsson tryggði Safamýrarpiltum sigurinn með marki á 9. mínútu.

Þetta er í raun annar leikurinn í röð sem Þróttur tapar, en lærisveinar Greggs Ryders lágu í valnum gegn ÍBV í bikarnum í síðustu viku.

Þróttur er eftir sem áður á toppnum með 18 stig eftir sjö umferðir, tveimur stigum á undan Ólsurum.

Fram lyfti sér upp í áttunda sætið þar sem liðið er með sjö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×